„Auðmjúkur, þakklátur og stoltur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 24. febrúar 2026 10:00 Snorri Steinn er þakklátur að geta kallað sig landsliðsþjálfara og vill sinna starfinu áfram. Samningaviðræður við HSÍ standa yfir. Vísir/Lýður Valberg Snorri Steinn Guðjónsson lætur umboðsmann sinn alfarið sjá um samningaviðræður við HSÍ um framhald hans sem landsliðsþjálfari í handbolta. Samningurinn rennur út í ár en Snorri vill taka næstu skref með landsliðinu.
Landsliðið náði nýverið sínum besta árangri í 16 ár þegar það lenti í fjórða sæti á EM sem fram fór í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Snorri Steinn var að stýra Íslandi í þriðja sinn á stórmóti og framfaraskref verið tekin á hverju móti. Hann skrifaði undir þriggja ára samning þegar hann tók við 2023 og því ljóst að samningurinn er laus. Viðræður við HSÍ um framlengingu standa yfir en Snorri finnur einnig fyrir áhuga annarsstaðar frá. „Umboðsmaðurinn minn er helvíti vakandi fyrir þessum hlutum. Þetta er alveg spes bransi. En auðvitað finn ég fyrir það að athyglin eykst. Bæði hefur það gerst hægt og rólega eftir að ég tek við og einnig með þessum árangri,“ segir Snorri og bætir við: „Það er eitthvað sem ég hef alltaf bakvið eyrað. Það er mjög óhollt að plana mikið sem þjálfari. Ég held það sé ekkert sniðugt að gera það.“ Fyrst og fremst er hann þakklátur fyrir að sinna starfi landsliðsþjálfara og segir starfi sínu með liðið ekki lokið. „Ég er bara auðmjúkur, þakklátur og stoltur af því að vera landsliðsþjálfari Íslands í handbolta. Ég tek því ekki sem sjálfsögðum hlut. Auðvitað er ég bara í viðræðum við HSÍ og það bara mjakast í rétta átta, held ég. Þó ég skipti mér lítið af þeim, ég er bara með mann í því,“ „Ég finnst ég ekki vera búinn sem þjálfari hjá þessu liði. Mér finnst við sem hópur eiga eitthvað inni. Meðan mér líður þannig vil ég einblína á það,“ segir Snorri. Ekki viss um orkustigið til að sinna báðu Snorra hafa boðist störf sem þjálfari félagsliðs og því velt upp hvort hann sé með augun á því að stýra jafnvel félagi samhliða landsliðinu, sem tíðkast víða í handboltanum. Hann segist hafa orðið eirðarlaus á köflum sem þjálfari landsliðsins en sé ekki að flýta sér. Einbeitingin sé fyrst og fremst á landsliðinu. „Eftir að hafa upplifað þrjú mót og síðast þetta mót, er ég ekki viss um að ég hafi orkuna sem ég þarf að hafa til að geta farið beint í félagslið,“ segir Snorri sem horfði til að mynda upp á aðstoðarlandsliðsþjálfarann Arnór Atlason fara beint af mótinu út á æfingagólf með Álaborg í Danmörku. Snorri vonast til að samningaviðræðurnar skili árangri og framhald hans sem landsliðsþjálfari sé þannig tryggt. „Það er plan A. Það samtal er í gangi. Öll samtöl geta farið í báðar áttir en ég á ekki von á að þetta fari í skrúfuna. Ég er ekki að deyja úr stressi yfir þessu – ekki ennþá,“ segir Snorri. Töluvert meira kemur fram í löngu viðtali við Snorra þar sem Evrópumótið er gert upp og farið um víðari völl. Viðtalið má sjá í heild að neðan. Klippa: Snorri ræðir EM, sambandið við Dag, Þjóðarhöll og næstu skref
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 HSÍ Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport Fleiri fréttir Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira