Díana í lokaprófi og missir af mikilvægum landsleik Sindri Sverrisson skrifar 19. febrúar 2026 17:15 Díana Dögg í baráttunni í leiknum gegn Frökkum. Vísir/EPA Díana Dögg Magnúsdóttir, skytta Blomberg-Lippe í Þýskalandi, mun ekki spila með íslenska landsliðinu í fyrri leiknum við Svartfjallaland í næsta mánuði, vegna lokaprófs í flugvélaverkfræði.
Þetta staðfesti Díana við Handkastið og því ljóst að landsliðið þarf að spjara sig án hennar á Ásvöllum 4. mars, þegar Svartfellingar koma í heimsókn í undankeppni EM. Díana er engu að síður í landsliðshópnum sem Arnar Pétursson þjálfari tilkynnti í gær, og verður til taks í seinni leiknum við Svartfellinga á útivelli 8. mars. Í samtali við Handkastið segir hún einfaldlega ekki mögulegt að fá að fresta lokaprófinu. Mikið sé undir því taki hún ekki prófið, eða falli á því, þá megi hún ekki skrifa mastersritgerð sína á næstu önn. „Því miður þá er staðan svona og engin sjúkrapróf í boði í skólanum heldur en vonandi er þetta bara síðasta prófið mitt í flugvélaverkfræðinni og þá þarf ekki að vera að púsla þessu öllu saman alltaf,“ sagði Díana. Ísland er í slæmri stöðu í undankeppninni eftir naum töp gegn Færeyjum og Portúgal í fyrstu leikjunum. Tvö efstu lið hvers riðils komast á EM sem og liðin í 3. sæti með bestan árangur í fjórum af sex riðlum. Svartfellingar hafa á að skipa besta liði riðilsins og unnu Ísland með níu marka mun, 36-27, á HM í desember.
EM kvenna í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Kemur Snorri Steinn á óvart í landsliðsvali sínu? Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira