Markvörður Íslendingaliðsins hættir vegna fjárhagsvandræða félagsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 10:00 Andreas Palicka fagnar vörðu skoti á móti Íslandi á Evrópumótinu á dögunum. EPA/Johan Nilsson Sænski stjörnumarkvörðurinn Andreas Palicka hefur komist að samkomulagi við norska handknattleiksfélagið Kolstad um að slíta samstarfinu með tafarlausri verkun.
Kolstad sendi frá sér fréttatilkynningu og þar kom fram að ástæða ákvörðunarinnar væri sögð vera fjárhagsstaða félagsins undanfarið. „Til að tryggja sjálfbærari rekstur hefur verið nauðsynlegt að lækka launakostnað og því hafa aðilar í sameiningu komist að lausn sem hentar báðum,“ skrifaði Kolstad í tilkynningu sinni. Með liðinu spila íslensku leikmennirnir Sigvaldi Björn Guðjónsson, Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson en sá síðastnefndi er markvörður. „Kolstad Håndball kann vel að meta þær uppbyggilegu viðræður sem átt hafa sér stað í ferlinu og telur að Andreas hafi sýnt af sér fagmennsku í alla staði. Jafnframt er mikilvægt að árétta að hann ber auðvitað enga ábyrgð á þeim fjárhagserfiðleikum sem Kolstad hefur gengið í gegnum,“ sagði framkvæmdastjórinn Jostein Sivertsen. Palicka sjálfur leynir því ekki að hann hefði kosið aðra niðurstöðu. „Tími minn hjá Kolstad Håndball varð öðruvísi en ég bjóst við. Á sama tíma hef ég skilning á áskorunum félagsins og hef því átt þátt í lausn sem er báðum aðilum fyrir bestu. Ég óska Kolstad alls hins besta í framtíðinni,“ sagði Palicka. Hinn 39 ára gamli leikmaður hefur spilað fyrir nokkur stór evrópsk félög á ferlinum. Kiel, Aalborg og Paris Saint-Germain eru meðal þeirra liða sem Palicka hefur staðið í marki fyrir. Hann yfirgaf Frakkland og PSG til að ganga til liðs við Kolstad árið 2025.
Norski handboltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira