Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 16:02 Harvey Elliott fær fá tækifæri hjá Aston Villa sem verða að kaupa hann spili hann tíu leiki fyrir félagið. Getty/Marc Atkins Harvey Elliott fór á lán til Aston Villa frá Liverpool í ágúst þegar hann var nýorðinn enskur meistari og hafði verið valinn leikmaður Evrópumóts U21 landsliða síðasta sumar. Fimm mánuðum síðar er hann að upplifa martröð sem hann hefur litla sem enga stjórn á sjálfur.
Elliott er vissulega hæfileikaríkur leikmaður en nú er eins og hvorki móðurfélag hans né lánsfélag virðist vilja hafa hann. Þessi 22 ára leikmaður er enn á Villa Park eftir að félagaskiptaglugginn lokaðist en framtíð hans til lengri tíma er allt annað en tryggð. Hann er nú aðeins þremur leikjum frá því að lánssamningur hans, sem gerður var þegar Monchi, fyrrverandi yfirmaður knattspyrnumála, stýrði leikmannakaupum Villa, verði að varanlegum 35 milljóna punda kaupsamningi. Vill ekki kaupa Elliott En hann er þrátt fyrir að hafa að mestu verið settur til hliðar af stjóranum Unai Emery, sem hefur verið harður á því í marga mánuði að hann vilji ekki kaupa Elliott til frambúðar. It’s just sad how trapped Harvey Elliott is between the two clubs because of the loan deal with a mandatory to buy. 💔 pic.twitter.com/LSCiYtUIBO— Samuel (@SamueILFC) February 2, 2026 Svo hvað ber framtíðin í skauti sér, til skemmri og lengri tíma, fyrir leikmann sem hóf tímabilið vongóður um farseðil á heimsmeistaramótið en hlýtur nú að vera í lausu lofti? Breska ríkisútvarpið fór yfir óvenjulega og ósanngjarna stöðu kappans. Elliott verður sjálfkrafa fastráðinn leikmaður Villa ef hann spilar tíu leiki á þessu tímabili. Í ljósi takmarkaðs spiltíma hans og oft og tíðum vægðarlausrar hreinskilni Emery um áhugaleysi sitt á að kaupa hann, ræddu Liverpool og Villa um að breyta samkomulaginu á síðustu dögum. Þeim tókst þó ekki að finna lausn og Emery hefur gefið í skyn að hann muni ekki skipta um skoðun. Hann er frábær strákur „Með Harvey, þá er ekkert að breytast. Hugmynd okkar er sú að við höfum talað skýrt við hann. Hann er frábær strákur,“ sagði Emery í síðustu viku. Harvey Elliott is expected to stay at Aston Villa after failing to find an agreement on a return to Liverpool.Club sources say there had been no recent discussions on the removal of the 10-game obligation that exists in the deal for Elliott, which indicates that Villa need to… pic.twitter.com/EDRvA5xNo6— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) February 2, 2026 Elliott spilaði allan leikinn gegn RB Salzburg í síðustu viku í Evrópudeildinni og kom inn af bekknum þegar Villa tapaði fyrir tíu manna liði Brentford á sunnudag. Þetta voru fyrstu leikir hans í fjóra mánuði, síðan hann kom seint inn á í leik gegn Feyenoord í Evrópudeildinni þann 2. október. Skilaboðin, jafnvel þá, voru þau sömu frá Emery – „það var ekkert að breytast“. Aðstæður hjá Aston Villa hafa breyst En aðstæður hjá Villa hafa breyst. Meiðsli lykilmiðjumanna, Boubacar Kamara sem verður– frá keppni fram á næsta tímabil og– John McGinn og Youri Tielemans (sem báðir verða frá í marga mánuði, ekki vikur) hafa skilið eftir skarð á þeim hluta vallarins sem Elliott spilar á. Ef liðið kemst í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og FA-bikarsins mun Villa spila 61 leik á þessu tímabili. Margir nýir leikmenn, fjarvistir og brottfarir, en niðurstaðan er líklega sú að Emery þurfi meira á Elliott að halda. Hvað gerist verður fróðlegt að sjá en það má lesa meira um þessa sérstöku stöðu stráksins hér. Harvey Elliott’s move to Aston Villa last summer was meant to be a World Cup springboard.Instead, it has turned into a nightmare.So why is Unai Emery not picking him, why did Liverpool not take him back and what could his future hold?📝 @greggevans40, @JamesPearceLFC,… pic.twitter.com/wTcA0TLlwH— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) February 3, 2026
Enski boltinn Aston Villa FC Liverpool FC Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Sjá meira