Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 09:30 Crystal Palace keypti framherjan Jorgen Strand Larsen frá Wolves sem voru stærstu fréttirnar frá rólegum lokadegi. @cpfc Lokadagur félagaskiptagluggans í ensku úrvalsdeildinni hefur aldrei verið jafn rólegur og í gær en þá var aðeins gengið frá aðeins sjö samningum.
Enginn nýr leikmaður var staðfestur fyrr en rúmlega klukkan sjö um kvöldið eða stuttu eftir að glugginn lokaði í efstu deild Englands. Crystal Palace tilkynnti þá um kaup á framherjanum Jorgen Strand Larsen frá Wolves fyrir allt að 48 milljónir punda. Félög geta gengið frá kaupum í allt að tvær klukkustundir eftir opinberan lokunartíma, svo framarlega sem samningsblaði er skilað fyrir klukkan 19:00 til að fá aukinn tíma til að ljúka við nauðsynlega pappírsvinnu. Fimm samningar til viðbótar voru staðfestir eftir lokunarfrestinn – meðal annars keypti Sunderland ekvadorska kantmanninn Nilson Angulo frá Anderlecht fyrir 17,5 milljónir punda, á meðan Wolves fékk miðjumanninn Angel Gomes að láni frá Marseille og fyllti skarð Strand Larsen með Adam Armstrong frá Southampton fyrir sjö milljónir punda. Þar með fór heildareyðsla ensku úrvalsdeildarinnar í vetrarglugganum yfir 390 milljónir punda. Liverpool samdi á lokadeginum um kaup á varnarmanninum Jeremy Jacquet frá Rennes, en þau skipti – og greiðsla 60 milljóna punda kaupverðsins – munu ekki eiga sér stað fyrr en í sumar. Tvö stærstu umræðuefni dagsins tengdust Crystal Palace – koma Strand Larsen frá Wolves og að hætt var við félagaskipti framherjans Jean-Philippe Mateta til AC Milan vegna vandamála í læknisskoðun. Að öðru leyti var dagurinn að mestu laus við spennu í félagaskiptum þar sem ekkert af sex efstu liðunum gerði neitt. Ein af athyglisverðari hreyfingunum var brottför úr úrvalsdeildinni, þegar fyrrverandi enski landsliðsmaðurinn Kalvin Phillips fór frá Manchester City til Sheffield United í Championship-deildinni á láni út tímabilið. Þessi skipti koma fjórum árum eftir að City keypti Phillips frá Leeds fyrir 45 milljónir punda. Aðrir samningar sem voru staðfestir seint um kvöldið voru meðal annars kaup Nottingham Forest á varnarmanninum Luca Netz frá Borussia Mönchengladbach, lánssamningur kantmannsins Tyrique George frá Chelsea til Everton út tímabilið, á meðan Tottenham og Arsenal tilkynntu bæði um nýjan leikmann í unglingaakademíuna.
Enski boltinn Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Sjá meira