Handbolti

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Dan­mörku: Hetjuleg frammi­staða gegn heimsmeisturunum

Íþróttadeild Sýnar skrifar
Janus Daði Smárason átti frábæran leik gegn dönsku heimsmeisturunum og skoraði átta mörk.
Janus Daði Smárason átti frábæran leik gegn dönsku heimsmeisturunum og skoraði átta mörk. vísir/vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur um 3. sætið á Evrópumótinu. Þetta var ljóst eftir þriggja marka tap Íslands fyrir Danmörku, 31-28, í undanúrslitum í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld. Frammistaða íslenska liðsins var til mikillar fyrirmyndar en fjórfaldir heimsmeistarar Dana náðu yfirhöndinni um miðjan seinni hálfleik og lönduðu sigrinum.

Ísland byrjaði leikinn vel og komst þremur mörkum yfir, 3-6. Danmörk svaraði með 6-2 kafla og liðin héldust í hendur það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Danir voru einu marki yfir í hálfleik, 14-13, þrátt fyrir Íslendingar hafi ekki skorað í rúmar átta mínútur um miðbik fyrri hálfleiks.

Ísland skoraði fyrstu tvö mörkin í seinni hálfleik og leikurinn var í járnum. Gísli Þorgeir Kristjánsson kom Íslendingum yfir, 18-19, en það var í síðasta sinn sem íslenska liðið var með forystuna í leiknum.

Danir skoruðu sex af næstu átta mörkum og náðu þriggja marka forskoti, 24-21. Íslendingar voru í eltingarleik það sem eftir lifði leiks og Danir lönduðu þriggja marka sigri, 31-28. 

Markvarslan hjá íslenska liðinu var takmörkuð og þá fóru fjögur víti í súginn. Kevin Möller átti góða innkomu í danska markið um miðbik seinni hálfleiks og reyndist okkar mönnum erfiður.

Janus Daði Smárason átti frábæran leik í kvöld og var markahæstur í íslenska liðinu með átta mörk. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sjö mörk, þar af sex úr vítum, og Ómar Ingi Magnússon var með sex mörk.

Ísland mætir Króatíu í leiknum um 3. sætið klukkan 14:15 á sunnudaginn.

Einkunnir Íslands gegn Danmörku: 

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 2 (10/1 varin skot - 56:41 mín.) Íslenska vörnin var sterk nær allan tímann en markvarslan fylgdi ekki með. Viktor varði tíu skot en í fjögur skipti var aukakast dæmt. Viktor hefur átt misjafna leiki á EM og leikurinn í kvöld var ekki einn af hans bestu.

Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - 4 (7/6 mörk - 53:38 mín.) Tók við vítaskyldunum eftir að Viggó Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon höfðu báðir klikkað. Skoraði af feykilegu öryggi úr fyrstu fimm vítunum sínum en brást bogalistin í tveimur af síðustu þremur. Skoraði úr eina færinu sem hann fékk í vinstra horninu.

Janus Daði Smárason, vinstri skytta - 5 (8 mörk - 48:36 mín.) Frábær frammistaða hjá Janusi sem spilaði einn sinn besta landsleik í kvöld. Byrjaði af miklum krafti og skoraði tvö af fyrstu þremur mörkum Íslands. Skoraði svo sex mörk í seinni hálfleik og hélt íslenska liðinu inni í leiknum þegar líða tók á leikinn. Fékk það afar erfiða verkefni að eiga við Mathias Gidsel í vörninni. Hann gerði allt sem hann gat en það er nær ómögulegt að eiga við dönsku skyttuna. Hetjuleg framganga hjá Janusi. 

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 3 (2 mörk - 41:37 mín.) Danir lögðu gríðarlega áherslu á að stöðva Gísla og brutu ítrekað á honum. Hann þurfti að hafa mikið fyrir hlutunum og komst ekki jafn mikið áleiðis og í fyrri leikjum mótsins. Stýrði sóknarleiknum samt af öryggi, skoraði tvö mörk, gaf fimm stoðsendingar og fiskaði tvö víti. Gaf allt sem hann átti í leikinn.

Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 4 (6 mörk - 53:16 mín.) Fyrirliðinn fylgdi eftir frábærum leik gegn Slóveníu í fyrradag. Skoraði fjögur mörk í röð í byrjun leiks og endaði með sex mörk. Gaf auk þess fjórar stoðsendingar og fiskaði fjögur víti. Góð frammistaða hjá Ómari, bæði í vörn og sókn.

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 3 (1 mark - 39:07 mín.) Fékk úr litlu að moða í kvöld. Íslenska liðið fékk nær engin hraðaupphlaup þar sem Óðinn blómstrar vanalega. Fékk tvö færi í horninu og nýtti annað þeirra.

Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 4 (3 mörk - 51:35 mín.) Sá sem hefur vaxið á þessu móti! Stóð í ströngu í vörninni, barðist eins og ljón og lét svo heldur betur til sín taka í sókninni. Nýtti öll þrjú skotin sín af línunni og fiskaði aukinheldur þrjú vítaköst.

Ýmir Örn Gíslason, varnarmaður - 4 (0 mörk - 30:07 mín.) Fékk afar verkefni í hendurnar, að eiga við besta sóknarlið heims, og stóð sig með prýði. Var á fullu allan tímann og þeir Elliði náðu vel saman í miðri vörninni.

- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Arnar Freyr Arnarsson, línumaður - (0 mörk - 5:41 mín.) Spilaði of lítið til að fá einkunn.

Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 2 (1/1 mark - 18:12 mín.) Byrjaði á klikka á víti en skoraði úr öðru undir lokin. Íslenska liðið hefði þurft eitthvað aukalega frá bekknum í kvöld en fékk ekki. Viggó gerði þó ágætlega í vörninni og leysti stöðu hornamanns um tíma í seinni hálfleik. 

Haukur Þrastarson, vinstri skytta - 2 (0 mörk - 12:50 mín.) Spilaði ekki mikið. Klikkaði á eina skotinu sem hann tók en átti ágætis kafla í vörninni.

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - (34 sek.) Reyndi að verja tvö vítaköst en án árangurs.

Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaður - (0 mörk - 2:06 mín.) Kom inn á undir lokin með það verkefni að sprengja leikinn upp.

Teitur Örn Einarsson, hægri hornamaður - (0 mörk - 2:03 mín.) Kom aðeins inn í byrjun seinni hálfleiks þegar Óðinn fékk brottvísun.

Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - (0 mörk - 0 mín.) Tók aukakast eftir leiktíminn í fyrri hálfleik var runninn en skaut í varnarvegginn.

Bjarki Már Elísson, vinstri hornamaður - (spilaði ekkert)

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Sýnar leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Leikmenn fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Útskýring á einkunnum

  • 6 - Heimsklassa frammistaða
  • 5 - Frábær frammistaða
  • 4 - Góð frammistaða
  • 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu
  • 2 - Ekki nógu góð frammistaða
  • 1 - Slakur leikur

Tengdar fréttir

„Þetta svíður en við gáfum þeim alvöru leik“

Snorri Steinn Guðjónsson var sársvekktur eftir 31-28 tap Íslands gegn Danmörku í undanúrslitaleik EM í handbolta. Hann segist samt ekki hafa getað beðið um mikið meira frá strákunum, litlu hlutirnir féllu bara ekki með þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×