Lærisveinn Alfreðs gafst upp og skipti um herbergi Sindri Sverrisson skrifar 29. janúar 2026 14:00 Lukas Mertens þarf sinn svefn eins og aðrir. Getty/Sina Schuldt Álagið á leikmönnum á Evrópumótinu í handbolta er nær ómannlegt og þá getur skipt sköpum að fá nægilega góðan nætursvefn. Þetta veit Þjóðverjinn Lukas Mertens sem fékk nóg af hrotunum í herbergisfélaga sínum.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska liðinu eru, líkt og Íslendingar, komnir í undanúrslit og mæta þar Króötum á morgun klukkan 16:45. Það verður fimmti leikur Þjóðverja á níu dögum og alls áttundi leikur þeirra á mótinu, á tveimur vikum. Mertens þarf líkt og aðrir eins mikla hvíld og hægt er á milli leikja og hann sá fljótt að hann gæti ekki hvílst nægilega vel í sama herbergi og liðsfélagi hans, Franz Semper, sem hrýtur einfaldlega of hátt. „Ég veit ekki með ykkur en þegar einhver hrýtur nálægt mér þá get ég ekki sofið. Ég bara sofna ekki. Svo ég færði mig yfir í einstaklingsherbergi,“ sagði Mertens við Bild. Hann hefði frekar kosið að geta deilt herbergi með félaga sínum, til að hafa einhvern að spjalla við og fara yfir málin á mótinu. „En á svona móti þá þarf maður svefn. Það er alveg nauðsynlegt. Ég hef ekkert á móti Franz en þetta var mikilvægt,“ sagði Mertens.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira