Ísland á þrjá af fjórum þjálfurum í undanúrslitunum á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2026 18:49 Alfreð Gíslason, Snorri Steinn Guðjónsson og Dagur Sigurðsson eru allir komnir með landsliðin sín alla leið í undanúrslit á Evrópumótinu í handbolta. EPA/Johan Nilsson Þýskaland og Króatía tryggðu sér sæti í undanúrslitum á Evrópumótinu í handbolta í kvöld sem þýðir það að Ísland á þrjá af fjórum þjálfurum í undanúrslitaleikjum Evrópumótsins í handbolta ár.
Snorri Steinn Guðjónsson hafði stýrt íslenska landsliðinu inn í undanúrslitin fyrr í dag og í kvöld fóru þeir Alfreð Gíslason og Dagur Sigurðsson einnig með lið sín upp úr sínum milliriðli. Þetta er í fyrsta sinn í sögu stórmóta í handknattleik karla sem þrír þjálfara af fjórum í undanúrslitum koma frá sama landinu. Það er því aðeins danska landsliðið, af þeim liðum sem spila um verðlaun á mótinu, sem er ekki þjálfað af Íslendingi sem er mögnuð staðreynd. Íslenskir þjálfarar hafa náð frábærum árangri í handboltanum undanfarin ár og er þetta Evrópumót enn eitt dæmið um það. Króatar unnu 27-25 endurkomusigur á Ungverjum eftir að hafa verið undir stóran hluta leiksins. Króatar tryggðu sér þar með sigur í milliriðlinum en íslenska landsliðið endar í öðru sætinu. Dagur er að fara með króatíska liðið í undanúrslit á öðru stórmótinu í röð því liðið endaði í öðru sæti á síðasta heimsmeistaramóti. Alfreð Gíslason stýrði á sama tíma þýska landsliðinu áfram eftir fjögurra marka sigur á Frökkum, 38-34, í úrslitaleik um sæti í undanúrslitum. Danir voru komnir áfram en þetta tap þýðir að Evrópumeistarar Frakka spila um fimmta sætið á þessu móti. Alfreð er að fara með þýska landsliðið í undanúrslit á öðru Evrópumótinu í röð en liðið endaði í fjórða sætinu fyrir tveimur árum. Liðið fór alla leið í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í París seinna sama ár en varð að sætta sig við silfrið. Þetta er langbesti árangur Snorra Steins með íslenska landsliðið. Þjóðverjar eru eins og er efstir í sínum milliriðli og mæta Íslendingum ef það breytist ekki. Danir geta hins vegar tryggt sér leik á móti Íslandi með því að vinna Norðmenn seinna í kvöld. Það er þegar ljóst að íslenskir þjálfarar vinna að minnsta kosti tvenn verðlaun á þessu Evrópumóti og Dagur á nú möguleika á að gera aðra þjóð að Evrópumeisturum því þýska landsliðið varð Evrópumeistari undir hans stjórn árið 2016.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira