Hleraði leikhlé Norðmanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. janúar 2026 23:31 Miguel Neves hlustar á leikhlé Noregs. Leikmaður portúgalska handboltalandsliðsins hlustaði á leikhlé Noregs undir lok leiks liðanna í milliriðli I á Evrópumótinu.
Portúgal og Noregur skildu jöfn, 35-35, í Malmö á EM í dag. Stigið gerði lítið fyrir liðin sem eiga ekki mikla möguleika á að komast í undanúrslit. Þegar rúm hálf mínúta var eftir af leiknum í dag tóku Portúgalir leikhlé. Einn leikmaður portúgalska liðsins, Miguel Neves, fékk þá spjaldtölvu sem hann lagði upp að eyranu. Eftir leikinn viðurkenndi hann að hann hefði hlustað á leikhlé Norðmanna. Ég spilaði í þrjú ár í Noregi og á norska kærustu, þannig ég tala og skil norsku. Ég reyndi að ná smá forskoti og komast að því hvað þeir ætluðu að gera. Þannig gat ég undirbúið vörnina,“ sagði Neves við TV 2. Myndband af atvikinu má sjá með því að smella hér. Neves sá ekkert athugavert við athæfi sitt er hann var spurður hvort honum fyndist þetta sanngjarnt. „Já, af hverju ekki? Mér finnst þetta alveg sanngjarnt. Þetta er ekkert vandamál fyrir mér,“ sagði Neves. TV 2 setti sig í samband við Handknattleikssamband Evrópu, EHF, vegna atviksins. Að mati EHF sýndu Portúgalir ekki drengilega framkomu með því að hlusta á norska leikhléið. Portúgal er í fimmta og næstneðsta sæti milliriðils I. Liðið mætir Spáni í lokaleik sínum í milliriðlinum á miðvikudaginn.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport Fleiri fréttir Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira