Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2026 06:20 Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í íslenska landsliðinu gátu verið hoppandi glaðir með frammistöðuna í stórsigrinum á Svíum í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm Svíarnir voru á heimavelli og höfðu unnið alla leiki sína á Evrópumótinu til þessa en þeir áttu ekki möguleika á móti huguðu og hungruðu íslensku landsliði á EM í handbolta í gær.
Niðurstaðan var átta marka stórsigur íslenska landsliðsins og öllu snúið á hvolf í milliriðlinum. Án vafa eitt besta kvöld strákanna okkar á stórmóti í handbolta frá upphafi. Strákarnir okkar sýndu hreinlega frábæran leik, fyrst með því að fara illa með Svíana í fyrri hálfleik og svo með því að ganga frá þeim á síðustu fimmtán mínútunum eftir að Svíar höfðu minnkað muninn í eitt mark. Íslenska landsliðið vann síðustu fimmtán mínútur leiksins 12-5 og niðurlægði sænska landsliðið á þeirra eigin heimavelli. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á leiknum í Malmö og náði þessum flottu myndum hér fyrir neðan. Viggó Kristjánsson átti stórleik og skoraði úr öllum ellefu skotunum sem hann tók í leiknum.Vísir/Vilhelm Svíar voru á heimavelli en íslenska stuðningsfólkið lét samt vel í sér heyra allan tímann og það munaði miklu um það.Vísir/Vilhelm Íslenska liðið sýndi hversu samheldið og öflugt það getur verið á góðum degi. Að vinna Svía með átta mörkum á þeirra eigin heimavelli er magnaður árangur.Vísir/Vilhelm Elliði Snær Viðarsson gaf allt sitt í leikinn og fékk á endanum krampa eftir að hafa skorað mikilvægt mark.Vísir/Vilhelm Þessi risastóri íslenski fáni hefur verið áberandi á Evrópumótinu.Vísir/Vilhelm Bjarki Már Elísson átti mjög góðan leik í vinstri horninu og þetta er sá Bjarki sem við munum eftir.Vísir/Vilhelm Elliði Snær Viðarsson skorar hér í leiknum en hann náði ellefu löglegum stöðvunum í vörninni.Vísir/Vilhelm Gísli Þorgeir Kristjánsson keyrði hvað eftir annað á sænsku vörnina, bjó til fimmtán skotfæri fyrir félaga sína og fiskaði fjögur víti.Vísir/Vilhelm Það var gaman að vera Íslendingur í Malmö í gær. Hér má sjá Arnar Frey Arnarsson kátan eftir leik.Gísli Þorgeir Kristjánsson Þorsteinn Leó Gunnarsson reynir hér skot en hann kom inn á völlinn til að taka lokasókn í einni sókninni þegar Ísland var að fá á sig leiktöf.Vísir/Vilhelm Íslensku marki er hér fagnað af mikilli innlifun.Vísir/Vilhelm Haukur Þrastarson lét heldur betur ekki vaða yfir sig í leiknum í gær.Vísir/Vilhelm Viktor Gísli Hallgrímsson varði vel allan leikinn og fagnar hér með íslenska stuðningsfólkinu sem svaraði með: „“ Viktor Gísli...Viktor Gísli....Viktor Gísli.“Vísir/Vilhelm Ýmir Örn Gíslason var öflugur í íslensku vörninni og fagnar hér í leikslok.Vísir/Vilhelm Snorri Steinn Guðjónsson setti þennan leik frábærlega upp.Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira