Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2026 18:45 Ungverjinn Adrian Sipos liggur á gólfinu eftir að hafa fengið þungt högg. EPA/Andreas Hillergren Ungverjar komu til baka og náðu jafntefli á móti Svisslendingum í öðrum leik dagsins í milliriðli Íslands á Evrópumótinu í handbolta.
Liðin skyldu jöfn, 29-29, í spennandi og skemmtilegum leik þar sem bæði lið fengu tækifæri til að skora sigurmarkið. Úrslitin þýða að Ungverjar og Svisslendingar eru með eitt stig eða einu stigi á eftir Íslendingum og Króatum sem unnu strákana okkar fyrr í dag. Slóvenar eru líka með tvö stig eins og Svíar en þau mætast seinna í kvöld. Það leit þó lengi út fyrir að ungverska liðið væri að fá stóran skell. Svisslendingar spiluðu frábærlega í fyrri hálfleiknum þar sem liðið skoraði tuttugu mörk og var sex mörkum yfir í hálfleik, 20-14. Það var ekki nóg með það heldur voru Svisslendingar margoft komnir sjö mörkum yfir, 22-15, 23-16, 24-17 og 25-18 á fyrstu tíu mínútunum í seinni hálfleiknum. Ungverjum tókst aftur á móti að grafa sig upp úr holunni og voru meira að segja komnir yfir í 29-28 á lokakaflanum eftir að hafa skorað fimm mörk í röð. Svisslendingar náðu þó að jafna metin og unnu svo boltann aftur. Þá var dæmdur ruðningur og boltinn fór yfir til Ungverja þegar sex sekúndur voru eftir. Ungverska liðið tók leikhlé en tókst að ná almennilegu skoti á markið áður en leiktíminn rann út.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Hafþór reyndi við þyngd sem hefði fært honum tugi milljóna Sport Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham? Fótbolti HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Fótbolti Tímamót á HM: Enginn leikmaður frá Real Madrid í liði Spánar Fótbolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Gengi Framara komið skemmtilega á óvart Fótbolti Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Enski boltinn Fleiri fréttir Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Sjá meira