„Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. janúar 2026 16:40 Viktor Gísli náði sér ekki á strik gegn Króötum í dag. Ekki frekar en aðrir í íslensku vörninni í fyrri hálfleik. Vísir/Vilhelm „Þetta er alveg mjög vont,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson eftir súrt eins marks tap gegn Króötum á EM í handbolta í dag.
Með sigri hefði íslenska liðið komið sér í kjörstöðu fyrir framhaldið í milliriðlinum, en tapið þýðir að brekkan er orðin brattari. Hún er þó langt frá því að vera óklífandi. „Þetta var bara ógeðslega lélegur fyrri hálfleikur fannst mér hjá bara öllum. Sóknin var flott, en að fá 19 mörk á okkur. Það bara má ekki gerast. Það er bæði mér að kenna og vörninni.“ En hvað fannst Viktori Gísla vera að klikka milli varnar og markvörslu hjá íslenska liðinu í dag? „Það er erfitt að segja núna. Það er erfitt að sjá það beint eftir leik. Maður þarf að kíkja á vídjóið og finna hvað við hefðum getað gert betur.“ „Mér fannst kannski eins og ég heyrði Gísla segja og við töluðum um í hálfleik þá vorum við bara frekar soft. Þessi Srna gæi var að hlaupa yfir hálfan völlinn og einhvernveginn ennþá að taka skotið með tvo menn í sér og það er það sem hann gerir best og við vorum ekki að ná að stoppa það. Við vorum svolítið að leyfa þeim að komast í sína bestu hluti í fyrri hálfleik. Mér fannst við gera betur í seinni, en þurfum við ekki bara að fá fleiri varða bolta? Er það ekki þannig?“ Þrátt fyrir tapið þýðir þó ekkert annað en að horfa fram á veginn og Viktor er sammála því að nú þurfi íslenska liðið að rísa aftur upp. „Klárlega. Við þurfum bara að búa til stemningu hverja einustu sekúndu og hverja einustu helvítis mínútu. Við erum ekki betri en það. Við þurfum bara að búa til stemningu í vörn og fá áhorfendur með okkur. Og vinna höllina með okkur. Við náðum ekki að gera það í fyrri hálfleik og það var dýrt,“ sagði Viktor að lokum. Klippa: Viktor Gísli eftir tapið gegn Króötum
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira