Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar Sindri Sverrisson skrifar 22. janúar 2026 10:30 Alfreð Gíslason man vel eftir tapinu sára gegn Portúgal á HM fyrir ári síðan. Getty/Sina Schuldt Alfreð Gíslason og hans menn í þýska landsliðinu hefja í dag leik í hinum sannkallaða dauðamilliriðli á EM í handbolta, með leik við Portúgal. Við því bjóst Alfreð alls ekki.
Með sigri á Spáni á mánudaginn endaði Þýskaland efst í A-riðli og það þýddi að liðið mætir efsta liði B-riðils í dag, klukkan 14:30. Eins og allir aðrir reiknaði Alfreð með að það lið yrði Danmörk en heims- og Ólympíumeistararnir töpuðu óvænt fyrir Portúgal og koma stigalausir inn í milliriðilinn. Þýskaland mætir því Portúgal í dag og hefur þar harma að hefna því Portúgal, með Costa-bræðurna Francisco og Martim fremsta í flokki, sló út Þýskaland í framlengdum leik í 8-liða úrslitum HM fyrir ári síðan. „Það var mjög svekkjandi hvernig við töpuðum fyrir þeim á síðasta ári. Við fengum fullt af tækifærum til að vinna leikinn. Eftir leik sagði fólk að við gætum nú ekki hafa tapað fyrir Portúgal því það væri ekki frábært lið. En eftir sigur þeirra á Danmörku þá veit allur heimurinn hvað þeir geta,“ sagði Alfreð á Handball.net. „Kostaði nokkurra klukkutíma vinnu“ Alfreð segist hafa þurft að vinna smá aukavinnu þegar ljóst varð að leikið yrði við Portúgal í dag en ekki Danmörk. „Við höfðum búist við að Danmörk yrði næsti mótherji okkar enda höfðu Danir ekki tapað á heimavelli óralengi. Það að það skuli í staðinn vera Portúgalar kostaði mig nokkurra klukkutíma vinnu. En við höfum spilað á móti öllum þessum andstæðingum áður hvort sem er,“ sagði Alfreð og bætti við að þýska liðið ætti auk þess að huga að eigin styrkleikum frekar en kostum og göllum mótherjanna. Eftir leikinn við Portúgal í dag munu Þjóðverjar spila við Noreg á laugardaginn, Dani næsta mánudagskvöld og svo við Frakkland næsta miðvikudag, svo fram undan er rosaleg dagskrá hjá Alfreð og hans mönnum.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Kane lendir um helgina Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira