Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2026 23:17 Ben Hinchliffe, markvörður Stockport County, skaut beint í rassinn á varnarmanninum Joseph Olowu. @EFL Íslenski framherjinn Benoný Breki Andrésson skoraði sigurmark Stockport County í ensku C-deildinni um helgina en leiksins verður þó örugglega minnst fyrir þrjú sjálfsmörk og þá einkum eitt þeirra sem liðsfélagi íslenska framherjans skoraði.
Stockport County vann 3-2 sigur á Rotherham United. Benoný Breki, sem hafði skorað sigurmarkið í leiknum á undan, byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður á 61. mínútu í stöðunni 2-2 og skoraði sigurmarkið fjórtán mínútum fyrir leikinn. Þrjú fyrstu mörk leiksins voru sjálfsmörk og tvö þeirra skoruðu leikmenn Rotherham í eigið mark. Fyrsta mark Rotherham í leiknum var þó algjörlega í boði liðsmanna Íslendingaliðsins. Ben Hinchliffe, markvörður Stockport County, ætlaði þá að sparka boltanum frá markinu sínu en það heppnaðist ekki betur en að hann skaut beint í rassinn á varnarmanninum Joseph Olowu og þaðan fór boltinn í tómt mark. Afar vandræðalegt móment sem hefur að sjálfsögðu vakið mikla athygli á netmiðlum. Olowu og Hinchliffe eru þó örugglega þakklátir Benoný Breka fyrir að bjarga málunum eftir þetta vandræðalega rassasjálfsmark því það hefði verið mun sárara ef þetta skrautlega sjálfsmark hefði kostað liðið stig. View this post on Instagram A post shared by @efl
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fleiri fréttir Man. City - Coventry | Lampard á kunnuglegum slóðum Nott. Forest - Tottenham | Er lífsmark í Spurs? Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Sjá meira