Sagður fá lengri líflínu Sindri Sverrisson skrifar 19. janúar 2026 10:02 Thomas Frank gæti átt afar lítið eftir sem stjóri Tottenham. Getty/Luke Walker Staða hins danska Thomas Frank hjá Tottenham er afar veik en þó er talið að hann verði áfram við stjórnvölinn á morgun þegar liðið mætir Dortmund í Meistaradeild Evrópu.
Tottenham tapaði gegn fallbaráttuliði West Ham á laugardaginn og er aðeins í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, eftir 22 umferðir, og gæti færst niður í 15. sæti í kvöld. Liðið endaði í 17. sæti á síðustu leiktíð og lét þá Ange Postecoglou fara þrátt fyrir Evrópudeildarmeistaratitil. Pressan á Frank hefur svo sífellt aukist þá sjö mánuði sem hann hefur stýrt Tottenham og samkvæmt BBC, Sky Sports og fleiri miðlum hefur stjórn félagsins nú velt upp þeim möguleika að skipta Dananum út. Verið sé að vega og meta aðra kosti í stöðunni. Þrátt fyrir vandræði fyrr á leiktíðinni hefur Frank notið trausts en það virðist vera að þverra og sigurmark Callum Wilson fyrir West Ham á laugardaginn, í uppbótartíma, gæti reynst vendipunktur. Sky Sports segir þó í dag að ekki sé búist við öðru en að Frank stýri Tottenham á morgun, í næstsíðustu umferð Meistaradeildar Evrópu þar sem Tottenham er í fínum málum, í 11. sæti af 36 liðum. Ekki sé búið að taka neina endanlega ákvörðun um Frank og að langtímaáætlunin hafi alltaf verið sú að hann myndi leiða liðið í gegnum erfiða umbrotatíma hjá félaginu. Baulað var á Frank eftir 2-1 tapið geng West Ham og hann mátti heyra kyrjað úr stúkunni: „Þú verður rekinn á morgun!“ en reyndi að bera sig vel á blaðamannafundi: „Auðvitað hef ég átt betri tíma og ég skil að ég er við stjórnvölinn svo að ég ber sök hérna. Það er ekkert við því að segja. Svo lengi sem stuðningsmenn styðja leikmennina og gera allt sem þeir geta til að hvetja þá til dáða, og að við höldum áfram, þá er ekkert vandamál,“ sagði Frank.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fleiri fréttir Man. City - Coventry | Lampard á kunnuglegum slóðum Nott. Forest - Tottenham | Er lífsmark í Spurs? Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Sjá meira