Snorri Steinn: Erum komnir með meira í vopnabúrið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. janúar 2026 09:33 Snorri Steinn mun undirbúa íslenska liðið af kostgæfni fyrir leik dagsins. „Staðan er eins. Þeir sem spiluðu eru heilir en Einar Þorsteinn er enn veikur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari fyrir æfingu strákanna okkar í gær.
Einar Þorsteinn Ólafsson veiktist á föstudag og var að sögn talsvert mikið veikur. Hann hefur verið í einangrun síðan. Snorri viðurkenndi að eðlilega hefði verið smá ótti að fleiri myndu veikjast en í gær voru allir aðrir enn við hestaheilsu. Klippa: Snorri klár fyrir Pólverjana Í dag er komið að leik gegn Pólverjum. Þeir hafa verið í feluleik fram að móti en Snorri sá þá spila gegn Ungverjum þar sem Pólland steinlá. „Þeir voru mikið að spila 7 á 6 og hafa verið í því áður. Við erum með ágætis mynd af þeim. Svo er í lagi að eitthvað sé óljóst. Þetta verður allt öðruvísi andstæðingur. Öðruvísi stærð og þyngd. Númer eitt, tvö og þrjú er að við séum með okkar á hreinu. Er við náum að gera það sem við viljum gera þá erum við góðir,“ sagði landsliðsþjálfarinn ákveðinn en sér hann fram á að spila líka 7 á 6 og jafnvel prófa aftur að vera með fjögurra manna útilínu? „Ég er ekki alveg kominn svona langt. Auðvitað óska ég þess að hefðbundinn sóknarleikur gangi rosalega vel og það verði ekkert vesen. Þetta er þá eitthvað sem er komið í okkar vopnabúr og við getum gripið til.“ Byrjun Íslands á mótinu var fullkomin og það hlýtur að gefa byr í seglin fyrir framhaldið. „Það segir sig sjálft. Vilja allir byrja svona. Mér fannst góð holning á okkur. Það er samt ekki tími til að vera glaður eða fúll. Það er bara leiser fókus á verkefnið. Við þurfum sömu frammistöðu og jafnvel betri til þess að vinna Pólverja.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Kane lendir um helgina Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira