Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2026 16:16 Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, fylgist með Mohamed Salah í leik á móti Brighton & Hove Albion sem var síðasti leikur Egyptans áður en hann fór í Afríkukeppnina. Getty/Simon Stacpoole Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool hefur sagt að hann sé ánægður með að fá Mohamed Salah aftur frá Afríkukeppninni í næstu viku og fullyrðir að framherjinn sé áfram „svo mikilvægur“ fyrir Liverpool.
Egyptaland, lið Salah, féll úr leik gegn Senegal í undanúrslitum Afríkukeppninnar á miðvikudag en þessi 33 ára gamli leikmaður verður áfram með landsliði sínu þar til eftir leikinn um þriðja sætið gegn Nígeríu í Casablanca á morgun. Salah olli uppnámi í síðasta mánuði þegar hann fór í frægt viðtal þar sem hann hélt því fram að Liverpool hefði „hent honum undir rútuna“ vegna slaks gengis liðsins og sagði að samband sitt við Slot væri hreinlega ekki til staðar. Salah var í kjölfarið hent úr hópnum fyrir leik Liverpool í Meistaradeild Evrópu gegn Inter Mílanó, en hann sneri aftur til leiks í 2-0 sigri á Brighton & Hove Albion áður en hann fór á Afríkukeppnina. Slot fullyrti þá og aftur núna að málið hefði verið leyst. „Fyrst og fremst spilar hann stóran leik fyrir Egyptaland á laugardag og svo kemur hann aftur til okkar,“ sagði Arna Slot á blaðamannafundi fyrir leik helgarinnar. „Ég er ánægður með að hann komi aftur. Mo hefur verið svo mikilvægur fyrir þetta félag og mig, svo ég er ánægður með að hann sé kominn aftur. Jafnvel þótt ég hefði fimmtán sóknarmenn væri ég ánægður með að sjá Mo aftur, en það er ekki okkar staða,“ sagði Slot. Aðspurður hvort Salah yrði tiltækur til að spila í Meistaradeildarleik Liverpool gegn Marseille næsta miðvikudag, sagði Slot: „Við erum í viðræðum við hann um hvað er ætlast til af honum þar og hér. Hann á mikilvægan leik á laugardag og svo kemur hann aftur til okkar. Við erum að ræða saman um [leikinn gegn Marseille] núna,“ sagði Slot. Liverpool vonast til að lengja taplausa hrinu sína í tólf leiki í öllum keppnum þegar þeir taka á móti Burnley í ensku úrvalsdeildinni á Anfield á morgun, laugardag.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira