„Þetta er ekki flókið“ Valur Páll Eiríksson skrifar 15. janúar 2026 23:15 Ómar Ingi Magnússon Vísir/Ívar Fannar Ómar Ingi Magnússon er landsliðsfyrirliði Íslands á komandi Evrópumóti sem hefst með leik við Ítali á morgun. Hann er klár í slaginn. „
Þetta er fínasti bær og hótelið fínt. Það er allt eins og það á að vera,“ segir Ómar Ingi um aðstæður hér í Kristianstad í Svíþjóð. Klippa: Ómar klár í slaginn Landsliðið lenti í gær eftir fínasta undirbúning í Frakklandi þar sem liðið vann Slóvena örugglega og tapaði naumlega fyrir Evrópumeisturum Frakka. „Þetta gekk þokkalega. Við spiluðum ágætlega, það var eitthvað gott og eitthvað slæmt. Við vonandi náum að slípa okkur aðeins til, að laga það sem var ekki nógu gott en að sama skapi halda áfram því sem við gerðum vel,“ segir Ómar. Hvað þarf þá að laga? „Við þurfum að vera aðeins klókari sóknarlega og finna betur lausnir á ákveðnum stöðum. En við sjáum hvort við náum ekki að slípa það aðeins saman,“ segir Ómar. Fjölmargir erlendir sérfræðingar hafa spáð Íslandi góðum árangri á mótinu og gera ráð fyrir að liðið komist í undanúrslit og spili því um verðlaunasæti. Hefur sú umræða einhver áhrif? „Við finnum ekkert þannig fyrir því. Við viljum gera vel og setjum á okkur sjálfir pressu. Það er aðallega það sem við erum að pæla, við viljum hámarka okkar frammistöðu. Það er það sem við einblínum á,“ segir Ómar. Hver eru hans persónulegu markmið fyrir mótið? „Ég vil spila vel og hjálpa liðinu. Það er aðallega það og ná í góð úrslit. Þetta er ekki flókið,“ segir Ómar sem kemur ferskur til leiks eftir að hafa misst af HM í fyrra vegna meiðsla. „Ég er ánægður að koma aftur inn og nýt þess að vera hérna. Það er líka markmið hjá mér að njóta þess að spila og hafa gaman að þessu.“ Viðtalið við Ómar má sjá í spilaranum. Ísland mætir Ítalíu klukkan 17:00 á morgun. Teymi Sýnar mun fylgja landsliðinu eftir hvert fótmál fram að leik. Honum verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira