Ýtt í menn ef þeir eru ekki 110 prósent Valur Páll Eiríksson skrifar 15. janúar 2026 11:30 Einar Þorsteinn er klár í slaginn. Vísir/Sigurður Már Einar Þorsteinn Ólafsson er fyrst og fremst spenntur fyrir komandi Evrópumóti karla í handbolta. Hann kveðst meðvitaður um að það reyni á þolinmæðina eftir tækifærum á mótinu.
Einar Þorsteinn er mættur á sitt þriðja stórmót með landsliðinu og segir það hægt og rólega venjast, að taka þátt í slíkum stórviðburði. „Maður er kannski ekki eins mikið að fylgjast með öllu í kringum sig dag frá degi. En spennan og stressið fylgir manni ennþá, allavega á þriðja mótinu, ég veit ekki hvernig það verður á nítjánda eða tuttugasta móti. Ég er enn með sama spenninginn og ógeðslega spenntur að fá að vera hérna,“ segir Einar. Klippa: Einar Þorsteinn klár í slaginn Sérlega mikill kraftur á æfingu Strákarnir mættu til Kristianstad í Svíþjóð í gær þar sem riðillinn verður leikinn næstu vikuna eða svo. Einar segir sérlega mikla einbeitingu og hörku hafa einkennt fyrstu æfinguna eftir komuna í gær. „Hún var mjög góð á miðað við ferðalag og allt sem gekk á í dag. Það var alvöru kraftur og hiti hjá leikmönnum á æfingu. Það er gott, það er það sem við viljum, að krafturinn sé til staðar sama við hvaða aðstæður,“ segir Einar og segir undirbúning almennt hafa gengið nokkuð vel í Frakklandi áður en komið var til Svíþjóðar. „Við fengum loksins hörku æfingaleiki til að prófa sig. Það var flest plúsar í því. Í dag er fyrsti dagurinn sem maður finnur að þetta sé að byrja. Ég er mjög spenntur að vera kominn hingað núna,“ segir Einar en Ísland vann Slóveníu og tapaði naumlega fyrir Frökkum í tveimur æfingaleikjum um helgina síðustu. Klár þegar kallið kemur Andinn í hópnum sé þá almennt góður og menn einbeittir á komandi verkefni. „Á æfingum verður maður að vera 110 prósent, annars er maður ekki beint skammaður en það er ýtt í mann. Þess er til ætlast af öllum að halda þessu stigi og við vitum að á svona móti tapar maður ef það er gefið eftir. Þú spilar eins og þú æfir,“ segir Einar. En hvernig hlutverki býst hann við á komandi móti? „Ég vonast eftir því besta. Ég er klár þegar kallið kemur. Það er erfitt að vita ekki hvenær það kemur en ég verð alltaf klár og bíð spenntur,“ segir Einar. Ítalir eru fyrsta verkefni Íslands á föstudaginn. Í riðlinum eru einnig Pólverjar og Ungverjar. Ítalska liðið er sérstök áskorun en liðið spilar það sem mætti kalla óhefðbundinn handbolta. „Það er skrýtið að fá allt öðruvísi lið í fyrsta leik. Þeir eru eins og Stuttgart í þýsku deildinni, mikið með sex útileikmenn. Maður vill hæð til að stoppa maður á mann en ef maður fer of hátt leysa þeir inn. Þá verður kaós ef maður er með of mikla hæð svo það snýst um að finna jafnvægið inn á milli. Þetta snýst mjög mikið um að vinna einvígin, maður á mann,“ segir Einar. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Kane lendir um helgina Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira