Eini þýski þjálfarinn á EM þjálfar Ítalíu en hefur mikla trú á Alfreð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2026 13:30 Bob Hanning er ávallt líflegur á hliðarlínunni eins og við Íslendingar munum kynnast annað kvöld. Getty/City-Press Bob Hanning er þjálfari Ítalíu sem mætir Íslandi í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu á morgun. Hann telur þýska landsliðið vera eitt af sigurstranglegustu liðunum á Evrópumótinu í handbolta.
Alfreð Gíslason þjálfar þýska landsliðið en Hanning telur jafnvel mögulegt að vetrarævintýrið frá 2016 endurtaki sig þegar annar íslenskur þjálfari, Dagur Sigurðsson, gerði Þjóðverja að Evrópumeisturum. „Ég tel áttatíu prósent líkur á að Þýskaland komist í undanúrslit. Ég hefði sagt 75 prósent áður, en í leikjunum gegn Króatíu mátti finna fyrir yfirburðum, breiddin í hópnum og varnarleikurinn eru öðruvísi en á HM,“ sagði Bob Hanning í viðtali við SID fyrir upphaf mótsins. „Ég hækka það kannski jafnvel í 83 prósent,“ bætti Hanning við. Danska landsliðið, sem hefur unnið tvo síðustu stórmót (HM 2025 og ÓL 2024), er ekki ósigrandi að mati Hanning. Orðinn þreyttur á að heyra bara talað um Dani „Það er alls ekki óhugsandi,“ sagði hinn 57 ára gamli þjálfari um mögulegan titil hjá Alfreði og félögum: „Ég er líka orðinn þreyttur á að heyra alltaf bara talað um Dani sem sigurstranglegasta liðið. Já, þeir eru með frábært lið en þeir hafa ekki unnið EM-titil síðan 2012,“ sagði Hanning. Þýska liðið, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, hefur keppni sína á EM í kvöld á móti Austurríki. Í milliriðli má búast við hörkuleikjum hjá þeim þýsku gegn Danmörku, ríkjandi meisturum Frakklands, auk Noregs, sem er meðgestgjafi, og Portúgals, sem komst í undanúrslit á HM. Vongóður fyrir hönd Þjóðverja Hanning er engu að síður bjartsýnn, en Þýskaland vann báða æfingaleiki sína gegn Króatíu (32-29 og 33-27). „Breiddin í hópi bestu leikmanna liðsins verður sífellt meiri. Þeir hafa fleiri möguleika á að skipta inn á á hæsta stigi. Það gerir mig mjög vongóðan,“ sagði Hanning. „Þeir geta brugðist við mismunandi andstæðingum á mismunandi hátt. Það skiptir ekki öllu máli hvort einn eða tveir leikmenn séu fjarverandi. Í augnablikinu eru allir leikmenn heilir. Þetta er besti hópurinn sem þú getur sett saman í bakvarðar- og línustöðunum,“ sagði Hanning. Þýðir alls ekki neitt fyrir hann Framkvæmdastjóri Füchse Berlin er eini þýski landsliðsþjálfarinn á Evrópumótinu því Alfreð þjálfari þýska landsliðið og það austurríska er með Slóvenann Ales Pajovic sem þjálfara. Þrír íslenskir þjálfarar eru með lið á mótinu því Dagur Sigurðsson þjálfar Króata. Það þýðir „alls ekki neitt“ fyrir Hanning sem segist frekar myndu „gleðjast ef fleiri þýskir þjálfarar sætu á bekknum hjá landsliðum“.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira