Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2026 07:33 Fagna íslensku strákarnir á EM í handbolta. Það eru margir handboltasérfræðingar á því. Getty/Marvin Ibo Guengoer Það virðast vera margir á því að íslensku handboltastrákarnir komi með verðlaunapening með sér heim af Evrópumótinu í handbolta sem hefst í dag.
Nýjasti handboltaspekingurinn til að lýsa yfir mikilli trú á íslenska landsliðið á mótinu er Daninn Rasmus Boysen. Boysen fylgist afar vel með handboltanum og þekkir því vel til þess sem er í gangi í alþjóðlegum handbolta. Hann spáir Dönum Evrópumeistaratitlinum og að þeir vinni Frakka í úrslitaleiknum. Boysen setur aftur á móti Ísland í þriðja sætið á undan Svíum. Samkvæmt spá hans þá mun íslenska liðið verða ofar en bæði Ungverjaland og Króatía sem verða væntanlega á vegi liðsins í riðlinum eða milliriðlinum. Íslenska landsliðið hefur aðeins einu sinni unnið til verðlauna á Evrópumóti en það var á EM í Austurríki 2010 þar sem íslenska landsliðið varð í þriðja sæti eftir sigur á Póllandi í leiknum um þriðja sætið. Ísland komst líka í undanúrslitin á EM í Svíþjóð 2002 en varð þá að sætta sig við fjórða sætið eftir tap á móti Dönum í leiknum um þriðja sætið. Boysen telur síðan að Daninn frábæri Mathias Gidsel verði bæði markahæstur og mikilvægasti leikmaður mótsins. Portúgalinn Francisco Costa verður besti ungi leikmaðurinn. Svisslendingar koma á óvart að hans mati en þetta gæti orðið erfitt mót fyrir Dag Sigurðsson og lærisveina hans í króatíska landsliðinu því Boysen býst við því að þeir valdi mestum vonbrigðum á mótinu.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira