„Hann er góð skytta en ekkert sérstakur hornamaður“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. janúar 2026 10:32 Einar segir landsliðsþjálfarann þurfa að finna betri lausnir í hægra horninu. vísir / bjarni Einar Jónsson hefur ekki mikla trú á tilraunaverkefni Snorra Steins Guðjónssonar, landsliðsþjálfara í handbolta, sem spilar skyttunni Teiti Erni Einarssyni í hægra horninu.
Einar var heilt yfir mjög hrifinn af því sem hann sá í æfingaleikjunum sem Ísland spilaði um helgina en hann hefur örlitlar áhyggjur af sóknarleiknum. Haukur Þrastarson var nefndur í því samhengi en hann komst ekki nógu vel inn í hlutina um helgina og svo hefur Einar ekki mikla trú á Teiti Erni Einarssyni í hægra horninu. Teitur Örn spilar alla jafnan sem skytta en getur leyst hornastöðuna og var valinn í landsliðshópinn fyrir EM sem hornamaður. „Það kom ekki vel út sóknarlega, það verður bara að segjast alveg eins og er“ segir Einar. „Varnarlega var hann fínn og það er ágætt, en það eru einhver atriði sem maður setur spurningamerki við. Ég veit ekki alveg hvernig þeir ætla að leysa þetta á mótinu, það kemur kannski betur í ljós þegar á reynir. Hann [Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari] var augljóslega að gefa Teiti fullt af mínútum og prófa þetta mikið en mér fannst það ekki ganga upp. Allavega ekki sóknarlega. Þannig að ég hugsa að við séum ekki að fara að sjá Teit spila mikið í horninu á þessu móti. Með fullri virðingu, hann er góð skytta en ekkert sérstakur hornamaður.“ Hugmynd landsliðsþjálfarans, með því að hafa Teit í horninu, var að hann kæmi öflugur inn í vörnina og gæti leyft öðrum leikmönnum, eins og til dæmis Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, að hvíla sig í horninu á meðan. Í leiðinni fengi líka aðalhornamaður landsliðsins, Óðinn Þór Ríkharðsson, hvíld á bekknum. „Það verður bara að koma í ljós á mótinu hvernig þeir leysa þetta en ég held að þeir muni finna aðrar lausnir en að láta Teit spila mikið sóknarlega í horninu“ segir Einar en viðtalið hann má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Einar Jónsson um Ísland á EM
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk komin heim Sport Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira