Solskjær ekki lengur líklegastur Sindri Sverrisson skrifar 11. janúar 2026 22:27 Michael Carrick og Ole Gunnar Solskjær þekkjast vel en talið er að aðeins annar þeirra verði ráðinn til að stýra Manchester United út tímabilið. Getty/Andry Kelvin Eftir starfsviðtöl helgarinnar má búast við því að Manchester United tilkynni um nýjan knattspyrnustjóra sem allra fyrst, jafnvel strax á morgun.
Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær og Englendingurinn Michael Carrick hafa núna báðir mætt í viðtal til forráðamanna United. Samkvæmt grein The Guardian í kvöld leiddu viðtölin til þess að Carrick er nú líklegastur til að taka við liðinu, sem bráðabirgðastjóri út yfirstandandi leiktíð. https://t.co/MjHgnWjVal ‘Michael Carrick has emerged from the interview process as the favourite ahead of Ole Gunnar Solskjær to be Manchester United’s interim manager for the rest of the season, with the club’s executive expected to seal the decision on Monday…’— jamie jackson (@JamieJackson___) January 11, 2026 Solskjær fékk slíkt tækifæri í desember 2018, þegar Jose Mourinho var rekinn, og var svo ráðinn til frambúðar í mars 2019 áður en hann var á endanum rekinn í nóvember 2021. The Guardian segir að talið hafi verið líklegast að Solskjær yrði aftur ráðinn nú, eftir brottrekstur Rúben Amorim fyrir viku og leikina tvo sem Darren Fletcher hefur verið við stjórnvölinn síðan þá. Það hafi hins vegar, samkvæmt heimildum miðilsins, breyst eftir starfsviðtölin. Fletcher, sem stýrt hefur U18-liði United, sagði eftir 2-1 tapið gegn Brighton í dag í enska bikarnum, að hann hefði ekki hugmynd um hvað nú tæki við hjá sér. Hann byggist við því að fá upplýsingar um það þegar hann myndi mæta á Carrington æfingasvæðið á morgun. Forráðamenn United eru sagðir vilja ganga frá ráðningu á nýjum bráðabirgðastjóra sem fyrst til þess að hann hafi sem mestan tíma til að undirbúa grannaslaginn við Manchester City á laugardaginn. Nýr bráðabirgðastjóri tekur við United í afar brattri brekku. Liðið er ekki í neinni Evrópukeppni, féll úr leik við fyrstu hindrun í bæði bikarnum og deildabikarnum, og mun því aðeins spila 40 leiki á þessari leiktíð sem hefur ekki gerst í yfir hundrað ár. Þá er liðið í 7. sæti úrvalsdeildarinnar og ef að næstu tveir leikir, gegn City og Arsenal, tapast má ætla að liðið dragist niður í neðri helming töflunnar nú þegar eina keppikefli þess er að ná Evrópusæti, og þá auðvitað helst sæti í Meistaradeild Evrópu.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira