„Elli“ gerði Alfreð og hans mönnum lífið leitt Sindri Sverrisson skrifar 11. janúar 2026 09:02 Alfreð Gíslason hefur sjálfsagt ekki kippt sér upp við vetrarstorminn í Þýskalandi en veðrið hafði sín áhrif á ferðalag hans og þýska liðsins. Getty/Goran Stanzl Vetrarstormurinn „Elli“ hafði mikil áhrif á ferðalag þýska handboltalandsliðsins eftir að það hafði unnið Króatíu í Zagreb á fimmtudagskvöld.
Alfreð Gíslason og Dagur Sigurðsson mætast að nýju í Hannover í Þýskalandi í kvöld, með lið Þýskalands og Króatíu, eftir að Alfreð fagnaði 32-29 sigri í troðfullri höll í Zagreb þegar liðin mættust á fimmtudaginn. Um er að ræða lokaundirbúning liðanna fyrir Evrópumótið sem hefst á fimmtudaginn. Þjóðverjar höfðu ætlað sér að fljúga heim frá Zagreb, til Frankfurt og þaðan áfram til Hannover. Þeir komust til Frankfurt, á föstudaginn, en gátu svo ekki flogið áfram fyrr en í fyrsta lagi daginn eftir. Ástæðan er hið mikla snjóveður sem verið hefur í Þýskalandi um helgina og sett margt úr skorðum. „Liðið ætlaði sér að eiga liðskvöld saman en það breyttist í liðsferð,“ sagði Benjamin Chatton, liðsstjóri þýska hópsins, við Sport 1 á föstudaginn. Til þess að menn gætu slakað á og jafnað sig á laugardeginum var brugðið á það ráð að aka með rútu á föstudagskvöldinu, til Hannover, og komst hópurinn þangað laust fyrir miðnætti eftir langan ferðadag. „Það var rétt ákvörðun að fara beint frá Fankfurt til Hannover með rútu. Þó að ferðatíminn hafi þrefaldast og verið næstum tólf tímar þá var andrúmsloftið gott í morgunmatnum og á léttri æfingu í kjölfarið,“ sagði Chatton í gær. Fyrirliðinn Johannes Golla var ekki með þýska hópnum í gær, af persónulegum ástæðum, en búist er við því að hann verði með liðinu í kvöld þegar það mætir Króötum öðru sinni. Þjóðverjar hefja svo EM á fimmtudaginn með leik við Austurríki í A-riðli í Herning í Danmörku. Þeir eru einnig í riðli með Serbíu og Spáni. Króatar eru í E-riðli og byrja á laugardaginn með leik við Georgíu, áður en þeir mæta svo Hollandi og Svíþjóð. Miklar væntingar eru til bæði þýska og króatíska liðsins enda stýrði Alfreð Þýskalandi til silfurs á síðustu Ólympíuleikum og Dagur stýrði Króatíu til silfurs á HM fyrir tæpu ári.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira