Kvaddi með fullkomnum hætti og kvalir Spurs halda áfram Sindri Sverrisson skrifar 7. janúar 2026 21:43 Antoine Semenyo fagnar sigurmarkinu gegn Tottenham í kvöld. Nú er hann á förum til Manchester City. Getty/Robin Jones Antoine Semenyo færði Bournemouth 3-2 sigur gegn Tottenham sem kveðjugjöf í kvöld, áður en hann heldur til liðs við Manchester City. Brentford skellti Sunderland, 3-0, Everton og Wolves gerðu 1-1 jafntefli, og ekkert var skorað hjá Crystal Palace og Aston Villa.
Mathys Tel kom Tottenham yfir snemma leiks í kvöld, þegar hann kom inn af vinstri kantinum og smellti boltanum neðst í fjærhornið, en heimamenn voru fljótir að jafna með skallamarki Evanilson. Þeir komust svo yfir þegar Eli Junior Kroupi skoraði á 36. mínútu í kjölfarið á annarri fyrirgjöf af hægri kantinum. Tottenham virtist vera að fá vítaspyrnu á 73. mínútu, þegar Micky van de Ven féll innan teigs, en eftir skoðun á myndbandi var vítið tekið af. Hollendingurinn var vægast sagt pirraður, skiljanlega, og fékk að líta gula spjaldið. Tottenham náði hins vegar að jafna og það mark var af dýrari gerðinni, þegar Joao Palhinha skoraði með frábærri bakfallsspyrnu. En eins og fyrr segir var Semenyo hetja Bournemouth og skoraði glæsilegt sigurmark í uppbótartíma. Þar með kveður hann liðið í 15. sæti, með 26 stig og tólf stigum frá fallsæti, aðeins stigi á eftir Tottenham sem hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum. Thiago setti brasilískt met Igor Thiago er áfram sjóðheitur fyrir Brentford og setti markamet fyrir Brasilíumann á einni leiktíð í ensku úrvalsdeildinni, þegar hann skoraði tvö mörk gegn Sunderland í kvöld. Hann hefur nú skorað sextán mörk á leiktíðinni. Thiago jafnaði metið, sem var í eigu Roberto Firmino, Gabriel Martinelli og Matheus Cunha, í fyrri hálfleik og bætti það svo með skallamarki um miðjan seinni hálfleik. Enzo Le Fée hafði fengið kjörið tækifæri til að jafna metin í 1-1 úr vítaspyrnu á 60. mínútu en reyndi vippu á mitt markið og hún fór beint í lúkurnar á Caoimhin Kelleher sem lét ekki gabba sig. Yehor Yarmolyuk kom svo Brentford í 3-0 þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Tvö rauð á Everton Botnlið Wolves hélt áfram að safna stigum með 1-1 jafntefli við Everton á útivelli, þrátt fyrir að vera 1-0 undir í hálfleik eftir mark frá Michael Keane. Mateus Mané jafnaði metin um miðjan seinni hálfleik en þá átti enn mikið eftir að ganga á, því Keane fékk beint rautt spjald á 83. mínútu og Jack Grealish svo sitt annað gula spjald og þar með rautt á 90. mínútu. Úlfarnir náðu þó ekki að nýta liðsmuninn. Markalaust hjá Palace og Villa Crystal Palace og Aston Villa gerðu svo markalaust jafntefli og er Villa því jafnt Manchester City í 2.-3. sæti með 43 stig, fimm stigum á eftir toppliði Arsenal sem á leikinn við Liverpool á morgun til góða.
Enski boltinn Tengdar fréttir Nýi stjórinn sá tíu Chelsea-menn tapa Liam Rosenior, nýr þjálfari Chelsea, fylgdist með úr stúkunni í kvöld þegar liðið tapaði gegn Fulham í Lundúnaslag í 21. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, 2-1. 7. janúar 2026 21:25 Mitoma bætti hag Arsenal á toppnum Manchester City gerði sitt þriðja jafntefli í röð þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Brighton á heimavelli 21. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. 7. janúar 2026 21:18 Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira
Nýi stjórinn sá tíu Chelsea-menn tapa Liam Rosenior, nýr þjálfari Chelsea, fylgdist með úr stúkunni í kvöld þegar liðið tapaði gegn Fulham í Lundúnaslag í 21. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, 2-1. 7. janúar 2026 21:25
Mitoma bætti hag Arsenal á toppnum Manchester City gerði sitt þriðja jafntefli í röð þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Brighton á heimavelli 21. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. 7. janúar 2026 21:18