„Er því miður kominn í jólafrí“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. desember 2025 22:32 Janus Daði Smárason verður með á EM í janúar. Vísir/Arnar Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason segir mikla tilhlökkun fyrir komandi Evrópumóti í handbolta. Hann hefur náð sér af meiðslum og finnur til með mönnum sem fengu ekki kallið á mótið. „
Það er alltaf gott að koma heim og fá aðeins vindinn í andlitið. Svo finnur maður það í samfélaginu, hvort sem er í sundi eða úti að labba, að það er að byrja smá tilhlökkun. Þá fær maður kitl í magann að það fari að koma að þessu loksins og geta farið að taka á því,“ segir Janus Daði, sem er í leikmannahópi Íslands fyrir EM í janúar, sem opinberaður var í dag. Klippa: Janus því miður kominn í jólafrí en verður í toppstandi „Það lítur út fyrir að flestir séu í toppformi. Við höfum verið lengi saman, kjarninn, mörg mót sem við höfum gengið í gegnum sem hóp þar sem við höfum fengið að þjást svolítið. Ég held það sé ró yfir okkur komandi inn í verkefnið. Við vitum að það getur verið stutt á milli. Svo það eina sem við getum stýrt er að undirbúa okkur vel og vinna þessa handboltaleiki á þeim 60 mínútum sem við fáum,“ segir Janus. Vali á hópi sem þessum fylgja þó ýmsar tilfinningar fyrir marga. Til að mynda eru Stiven Tobar Valencia og Sigvaldi Björn Guðjónsson utan hópsins sem heldur utan. Janus þekkir sjálfur að vera skilinn eftir enda landsliðið í fyrsta sæti hjá mörgum. „Þetta er alltaf hundfúlt. Ég man að ég var sjálfur ekki með 2019. Við eyðum öllu árinu í að undirbúa okkur æfa. Ég held ég tali fyrir hönd allra í liðinu að landsliðið er það sem okkur þykir vænst um og er efst í huga. Eigum við ekki að segja að með allri þjáningunni fylgi eitthvað gott með líka,“ segir Janus. Óljóst var með þátttöku hans um tíma þegar hann varð fyrir slæmum meiðslum í haust. Hann komst hins vegar af stað með félagi sínu Pick Szeged í Unverjalandi áður en jólafríið hófst þar ytra. „Nú er ég bara ferskur og ekkert meiddur. Ég var að detta aftur í leikform en er því miður kominn í jólafrí og get ekki verið að púla með liðinu mínu úti. En ég er þá bara hérna heima með gott fólk í kringum mig sem aðstoðar mig. Ég verð í toppstandi þegar við byrjum 2. janúar.“
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Kane lendir um helgina Körfubolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Fleiri fréttir Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Sjá meira