Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina Sindri Sverrisson skrifar 16. desember 2025 13:17 Gísli Þorgeir Kristjánsson var valinn bestur þegar Magdeburg vann Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð. EPA/Christopher Neundorf Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur ákveðið að breyta Meistaradeild og Evrópudeild karla umtalsvert og um leið áskilið sér rétt til þess að bjóða liðum utan Evrópu sæti í Meistaradeildinni.
Þetta er hluti þess sem samþykkt var eftir fund framkvæmdastjórnar EHF í Rotterdam um helgina, í tengslum við úrslit HM kvenna sem þar fóru fram. Ákveðið var að tíu efstu handknattleikssamböndin á styrkleikalista EHF fengju hvert um sig eitt öruggt sæti í nýju Meistaradeildinni, sem hefst tímabilið 2026-27. Röðun á listanum byggir á árangri tímabilin þrjú á árunum 2022-25. Löndin eru Þýskaland, Spánn, Frakkland, Danmörk, Pólland, Ungverjaland, Rúmenía, Portúgal, Króatía og Noregur. Þá geta að hámarki átta þessara þjóða fengið aukasæti, og fjórar þjóðir sem ekki eiga fast sæti. EHF áskilur sér svo rétt til að bæta við liðum eftir eigin geðþótta, þar á meðal liðum utan Evrópu. Í nýju Meistaradeildinni verða 24 lið, í stað 16 áður, og munu þau byrja á að spila í sex fjögurra liða riðlum. Efstu tvö lið úr hverjum riðli komast svo áfram í aðalhluta Meistaradeildarinnar, þar sem spilað verður í tveimur sex liða riðlum. Efstu fjögur lið úr hvorum riðli komast svo áfram í 8-liða úrslit og keppninni lýkur sem fyrr með fjögurra liða úrslitaveislu í Köln. Tvö pláss fyrir Ísland í Evrópudeildinni Hætt verður með undankeppni í Evrópudeildinni og munu þess í stað 32 lið hefja leik í átta fjögurra liða riðlum. Ísland á rétt á tveimur sætum. Tvö lið komast áfram úr hverjum riðli í útsláttarkeppni en þangað koma líka liðin tólf sem enduðu í 3. eða 4. sæti í fyrri riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Alls hefja því 28 lið leik í útsláttarkeppninni, þar sem leikið verður heima og að heiman, og komast 14 sigurlið áfram í 16-liða úrslit. Við þau bætast svo liðin tvö sem enda í 5. sæti í seinni riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira