Slot:„Hef ekki hugmynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. desember 2025 19:15 Arne Slot þurfti að svara mörgum spurningum um Mohamed Salah á blaðamannafundi í kvöld. getty/Andrew Powell Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, kveðst ekki vita hvort Mohamed Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.
Slot sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Mílanó í kvöld. Liverpool mætir Inter á San Siro í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. Eftir 3-3 jafnteflið við Leeds United á laugardaginn ræddi Salah við fjölmiðla og lýsti yfir óánægju með stöðu sína hjá Liverpool. Hann kvaðst hafa verið gerður að blóraböggli og samband þeirra Slots væri ekki lengur til staðar. Flestar þeirra spurninga sem Slot fékk á blaðamannafundinum í kvöld sneru að Salah sem fór ekki með Liverpool-liðinu til Mílanó. „Sá eini sem getur svarað því er Mo sjálfur. Ég get giskað en ég held að það sé ekki rétt á þessum tíma. Það er erfitt fyrir mig að vita hvern hann átti við í þessari stöðu,“ sagði Slot aðspurður hvort Egyptinn hefði átt við hann þegar hann sagði að honum hefði verið kastað fyrir rútuna. Sjá má blaðamannafund Slots hér fyrir neðan. „Fyrir laugardaginn töluðum við mikið saman. Stundum lengur og stundum skemur,“ sagði Slot. Hann var svo spurður hvort samband þeirra Salahs væri ekki lengur til staðar. „Mér líður ekki þannig en hann á rétt á sinni upplifun. Mér líður alls ekki þannig, allavega ekki fyrir laugardaginn. Þegar ég nota ekki leikmenn eru þeir ekki svo hrifnir af stjóranum. En hann sýndi starfsliðinu og samherjum sínum mikla virðingu og æfði af krafti,“ sagði Slot. „Að nokkru leyti komu ummæli hans mér á óvart. En þetta er ekki í fyrsta og ekki síðasta skiptið sem leikmaður segir eitthvað svona. Mín viðbrögð við þessu eru augljós og þau eru að hann er ekki með okkur hér.“ Næsti deildarleikur Liverpool er gegn Brighton en það er jafnframt síðasti leikurinn sem Salah gæti spilað áður en hann fer með egypska landsliðinu í Afríkukeppnina. „Við sitjum hér kvöldið fyrir stóran leik gegn Inter en það eru bara 36 klukkustundir frá því við fengum á okkur jöfnunarmarkið gegn Leeds. Þú hlýtur að skilja að ég reyni að undirbúa liðið mitt sem best fyrir næsta leik. Öll einbeitingin er á leiknum á morgun. Við ákváðum að taka hann ekki með en eftir morgundaginn tökum við stöðuna. Ég trúi því alltaf að leikmaður eigi afturkvæmt,“ sagði Slot er hann var spurður hvort Salah myndi spila gegn Brighton. Slot fékk svo spurningu um hvort Salah muni spila aftur fyrir Liverpool. „Ég hef ekki hugmynd. Ég get ekki svarað þessari spurningu núna,“ sagði Slot. Leikur Inter og Liverpool hefst klukkan 20:00 annað kvöld og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tengdar fréttir Búist við að Salah verði hent úr hóp Búist er við því að Mohamed Salah ferðist ekki með Liverpool yfir til Ítalíu í dag og verði ekki í hóp á morgun er liðið mætir Inter Milan í Meistaradeildinni. 8. desember 2025 12:41 Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd Mohamed Salah hefur séð til þess að þessa tímabils verður líklega minnst frekar fyrir það sem hann gerði utan vallar en innan hans. 8. desember 2025 10:31 Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Þetta hlýtur að koma til greina sem eitt af sprengifimustu viðtölum ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Viðtal norska blaðamannsins við Mohamed Salah um helgina hefur búið til hálfgerða borgarastyrjöld innan herbúða Englandsmeistara Liverpool. 8. desember 2025 07:30 Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ „Þetta var ótrúlegt viðtal,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, um risafréttir helgarinnar varðandi Mohamed Salah og stöðu hans hjá Liverpool. 7. desember 2025 21:40 Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Michael Owen, fyrrum framherji Liverpool, sem varð síðar óvinsæll hjá félaginu þegar hann samdi við Manchester United, hefur lagt orð í belg varðandi framgang Mohamed Salah eftir leik Liverpool við Leeds í gær. 7. desember 2025 15:35 Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur í Match of the Day á breska ríkisútvarpinu, BBC, gagnrýndi framkomu Mohamed Salah eftir leik liðsins við Leeds í gær. Salah rauf þögnina við fjölmiðla eftir þriðja leik hans á varamannabekk liðsins í röð þar sem hann útilokaði ekki brottför frá félaginu. 7. desember 2025 09:04 Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Enski boltinn Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti Úlfarnir lítil fyrirstaða fyrir Rauðu djöflana Enski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Slot: „Hef ekki hugmynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Dregið í enska bikarnum: Mávarnir fljúga til Manchester Í beinni: Wolves - Manchester United | Án sigurs mæta Úlfarnir Rauðu djöflunum Slot: „Hef ekki hugmynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“ Barton dæmdur í hálfs árs fangelsi Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Kom stjórnendum Liverpool á óvart hversu harðorður Salah var Scholes segir félagið eyðileggja Mainoo Búist við að Salah verði hent úr hóp Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Sjáðu markið sem West Ham-menn sáu tvær ástæður til að dæma af Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Landsliðsmaður handtekinn í London Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Guéhi hetjan og Palace upp í fjórða sæti Hópslagsmál á vellinum: „Áður en ég vissi af flugu hnefar út um allt“ Hömrunum heitt í hamsi eftir dramatík Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Karólína lagði upp en Hlín meiddist Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Kominn með nóg og vill fara frá United Fyrrum eigandi Liverpool látinn Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Sjáðu mörkin: Guimaraes beint úr horni, dramatík hjá Liverpool og öll hin Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot „Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ Hádramatík í sex marka leik Aftur aflýst hjá Andra vegna bleytu Everton í fimmta sæti og langþráður sigur Spurs Varnarmenn City í stuði og aðeins tvö stig í Arsenal Sjá meira
Búist við að Salah verði hent úr hóp Búist er við því að Mohamed Salah ferðist ekki með Liverpool yfir til Ítalíu í dag og verði ekki í hóp á morgun er liðið mætir Inter Milan í Meistaradeildinni. 8. desember 2025 12:41
Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd Mohamed Salah hefur séð til þess að þessa tímabils verður líklega minnst frekar fyrir það sem hann gerði utan vallar en innan hans. 8. desember 2025 10:31
Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Þetta hlýtur að koma til greina sem eitt af sprengifimustu viðtölum ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Viðtal norska blaðamannsins við Mohamed Salah um helgina hefur búið til hálfgerða borgarastyrjöld innan herbúða Englandsmeistara Liverpool. 8. desember 2025 07:30
Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ „Þetta var ótrúlegt viðtal,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, um risafréttir helgarinnar varðandi Mohamed Salah og stöðu hans hjá Liverpool. 7. desember 2025 21:40
Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Michael Owen, fyrrum framherji Liverpool, sem varð síðar óvinsæll hjá félaginu þegar hann samdi við Manchester United, hefur lagt orð í belg varðandi framgang Mohamed Salah eftir leik Liverpool við Leeds í gær. 7. desember 2025 15:35
Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur í Match of the Day á breska ríkisútvarpinu, BBC, gagnrýndi framkomu Mohamed Salah eftir leik liðsins við Leeds í gær. Salah rauf þögnina við fjölmiðla eftir þriðja leik hans á varamannabekk liðsins í röð þar sem hann útilokaði ekki brottför frá félaginu. 7. desember 2025 09:04