Kom stjórnendum Liverpool á óvart hversu harðorður Salah var Aron Guðmundsson skrifar 8. desember 2025 13:31 Óvissa er uppi um framtíð Mohamed Salah hja Liverpool. Visir/Getty Leikmenn Liverpool bjuggust við því að Mohamed Salah myndi tjá sig um stöðu sína hjá félaginu eftir að hafa verið ónotaður varamaður gegn Leeds United um komandi helgi. Það kom stjórnendum Liverpool hins vegar á óvart hversu harðorður Salah var um samband sitt við þjálfarann Arne Slot.
Salah, sem er einn af bestu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar lét gamminn geisa eftir að hafa verið ónotaður varamaður í leik gegn Leeds United um helgina sem lauk með 3-3 jafntefli. Salah, sem hefur verið prímusmótor í liði Liverpool undanfarin ár, hefur byrjað síðustu þrjá leiki Liverpool á bekknum. Á viðtalssvæði Elland Road, heimavallar Leeds, eftir leikinn um helgina gaf Salah sér góðan tíma með blaðamönnum sem er nokkuð ólíkt honum. Fljótt kom í ljós að um ekkert eðlilegt viðtal var að ræða. Salah sagði að verið væri að henda sér undir rútuna og að einhver hjá félaginu vildi ekki hafa hann þar. Þá lýsti hann því hvernig samband sitt og Arne Slot væri brostið. Það kom helstu stjórnendum Liverpool ekki á óvart að Salah hefði ákveðið að ræða sina stöðu við blaðamenn eftir leikinn gegn Leeds United um nýliðna helgi. En það hversu hörðum orðum hann fór um félagið og þjálfarann Arne Slot, kom þeim mjög á óvart The Athletic segir einhverja leikmenn Liverpool hafa strax búist við þessu frá Egyptanum því hegðun hans degi fyrir leik hafði breyst frá því sem vanalegt er eftir að Slot tilkynnti Salah að hann yrði ekki í byrjunarliðinu gegn Leeds United. Þrátt fyrir fjaðrafok undanfarinna daga og slæm úrslit bera eigendur Liverpool enn fullt traust til Arne Slot og er litið á stöðu Salah, sem hefur verið varamaður í undanförnum leikjum, sem tímabundna en ekki á þá leið að hann hafi misst sæti sitt í byrjunarliðinu til frambúðar. Salah er á leið á Afríkumótið með Egyptalandi eftir komandi leik Liverpool gegn Brighton um næstu helgi og eru uppi vangaveltur um framtíð hans hjá félaginu. Fari svo að Liverpool reyni að losa sig við hann í janúar, þegar félagsskiptaglugginn opnar á nýjan leik, er vitað af áhuga liða í sádíarabísku deildinni sem og MLS deildinni í Bandaríkjunum.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira