Fantasýn: Hefði átt að hlusta á fáránlegu rökin sín Sindri Sverrisson skrifar 26. nóvember 2025 14:17 Danny Welbeck hefur enn margt fram að færa í ensku úrvalsdeildinni. Getty/Charlotte Wilson „Stundum á maður bara að leyfa tilfinningunum að ráða. Ekki fara að hugsa út í meiðslasögu eða gögn varðandi spilaða leiki,“ sagði fantasy-spilarinn öflugi Eysteinn Þorri Björgvinsson, gestur nýjasta þáttar Fantasýn, þegar talið barst að Danny Welbeck.
Umræðuna má heyra eftir 20 mínútur af þættinum hér að neðan. Welbeck, sem fagnar einmitt 35 ára afmæli í dag, er fyrrverandi framherji Manchester United og Arsenal en hefur spilað með Brighton frá árinu 2020. Meiðsli hafa haft sín áhrif á hans feril en Welbeck er nú í 4. sæti yfir stigahæstu framherja ensku úrvalsdeildarinnar í fantasy-leiknum vinsæla. Hann skoraði og hlaut átta stig fyrir leikinn við Brentford um helgina, þar sem Brighton vann 2-1 endurkomusigur. Bar Verbruggen var hetja Brighton því hann varði seinna víti Igor Thiago í leiknum, í uppbótartíma. „Mér finnst eiginlega saga leiksins vera sú að Brentford hafi fengið sitt fimmta og sjötta víti á árinu. Hvað er að frétta með það? Næsta lið er með þrjú,“ sagði Albert Guðmundsson, annar stjórnenda Fantasýn, sem var einmitt með Verbruggen í sínu liði og græddi á varða vítinu. Hætti við Welbeck og sér eftir því „Welbeck er stærsta sagan fyrir mig,“ sagði Sindri Kamban sem hefði líklega betur hlustað á hjartað en heilann þegar hann valdi liðið sitt í ágúst: „Ég hugsaði um það fyrir mót að taka hann inn, út af tveimur fáránlegum ástæðum. Annars vegar hef ég farið í ferð til Brighton, fyrir mörgum árum, og hugsaði með mér að Brighton væri skemmtilegt lið. Síðan tók ég „run“ í FIFA einhvern tímann þar sem Welbeck raðaði inn mörkum fyrir mig. En svo hugsaði ég náttúrulega með mér að ég myndi ekki velja mann í liðið bara út frá þessum tveimur ástæðum. Ég sé eftir því í dag,“ sagði Sindri. Hlusta má á nýjasta þátt Fantasýn hér að ofan en hægt er að nálgast alla þættina með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira