Cunha gat ekki kveikt á jólaljósunum vegna slyss á æfingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. nóvember 2025 11:33 Matheus Cunha gæti mögulega misst af leik Manchester United á móti Everton vegna meiðsla en United hefur samt ekki staðfest neitt um það. Getty/Alex Pantling Manchester United-stjarnan Matheus Cunha meiddist á æfingu liðsins en það sem var óvenjulegt var hvernig það fréttist.
Cunha átti að mæta til að kveikja á jólaljósunum í Altrincham en afboðaði sig. Ástæðan var slys á æfingu og það vakti áhyggjur meðal stuðningsmanna um að hann hefði meiðst illa. Brasilíski sóknarmaðurinn átti að vera viðstaddur viðburðinn ásamt leikaranum Sam Aston, sem leikur Chesney í Coronation Street, í gærkvöldi, aðeins tveimur dögum áður en United tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni. Breska ríkisútvarpið segir frá. Aðeins nokkrum klukkustundum fyrir hátíðarhöldin, sögðu skipuleggjendur Visit Altrincham í færslu á Facebook að Cunha myndi ekki mæta „af læknisfræðilegum ástæðum“ þar sem leikmaðurinn „lenti í slysi á æfingu“. Manchester United hefur ekki enn staðfest frekari upplýsingar opinberlega eða hvort þetta muni hafa áhrif á þátttöku Cunha í leiknum gegn Everton. Heimildarmenn breska ríkisútvarpsins innan félagsins gerðu síðar lítið úr ótta um að Cunha gæti verið fjarverandi í lengri tíma. Þeir sögðu að Brasilíumaðurinn hefði fengið högg á æfingu en að málið væri talið minniháttar. Cunha skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í 4-2 sigri á Brighton í október og spilaði í báðum vináttuleikjum Brasilíu í nýafstöðnu landsleikjahléi. Á föstudag staðfesti aðalþjálfarinn Amorim að framherjinn Benjamin Sesko yrði frá keppni fram í miðjan næsta mánuð vegna hnémeiðsla. Ef Cunha verður ekki leikfær fyrir leikinn á mánudag myndi það neyða Amorim til að gera miklar breytingar. Mason Mount kæmi til greina, en Kobbie Mainoo og Joshua Zirkzee gætu einnig verið kallaðir inn í byrjunarlið Amorim í fyrsta sinn á þessu tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira