Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast Rakel Sveinsdóttir skrifar 19. júní 2025 07:02 Stundum pirrumst við óþarflega við einhverju smávægilegu. Þá er gott að nota rökhugsunina á okkur sjálf til að ná úr okkur pirringnum. En stundum er full ástæða til að bregðast við og nota þá rökhugsunina til þess að bregðast rétt og faglega við; Þannig að allir geti vel við unað. Vísir/Getty Það skiptir engu máli hvað vinnan okkar er frábær, viðskiptavinir dásamlegir, samstarfsfélagar geggjaðir og vinnustaðurinn sá allra besti; Við eigum öll okkar móment þar sem við getum stuðast yfir minnstu málum.
Já, pirrumst einfaldlega. Stundum samt yfir einhverju smávægilegu. Til dæmis tölvupósti sem okkur finnst hálf dónalegur. Eða einhver skoðanaskipti eða tal á fundi sem fór alveg með okkur. Djísus, hugsum við þá! En stundum líka yfir einhverju sem réttilega þarf að leysa úr. Því oft geta mál undið upp á sig ef það er ekki strax reynt að skera á einhverja hnúta. Eitt vinsælasta efni Harvard Business Review eru góð ráð fyrir alls konar í vinnunni. Þar á meðal að ná að leysa úr ágreining. Enda er hinn meinti ágreiningur oft ekki einu sinni stormur í vatnsglasi, heldur frekar eitthvað sem fyrir einhverra hluta sakir er að pirra okkur í dag. En kíkjum á góðu ráðin. Sem til viðbótar við að anda vel ofan í maga eru eftirfarandi: #1: Að setja sig í spor hins aðilans Það sem er gott fyrir okkur að gera er að reyna að sjá hlutina út frá sjónarhorni hins aðilans; Þessum sem er ósammála okkur eða sendi okkur einhvern tölvupóst sem okkur þykir miður eða sýndi einhverja hegðun sem við tókum nærri okkur. Því um leið og við gerum það, virðist hugurinn strax fara í að leita lausna þar sem útgangspunkturinn er: Samvinna frekar en sundrung eða samskiptaleysi. #2: Hvað er í raun og veru málið? Þetta er frábær spurning. Því oft getum við stuðast út af einhverju eða mistúlkað, oftúlkað eða ofhugsað eitthvað sem er í raun ekkert persónulegt og snýst ekkert um okkur, heldur eitthvað allt allt annað. Að ná áttum og sjá betur um hvað málið snýst í raun, gerir okkur betri í því að ákveða skynsamlegri næstu skref. #3: Markmiðið Loks er það að átta okkur á því hvert markmiðið okkar er. Því ef við viljum leysa úr einhverjum málum getur það ekki verði ,,af því bara,“ einhver hlýtur tilgangurinn að vera. Viljum við ná meiri árangri í einhverju vinnutengdu? Eða snýst málið um að viðhalda góðu andrúmslofti í vinnunni? Að vera með skýrt markmið er nauðsynlegt til að halda einbeitingunni og fara ekki óvart að vaða úr einu í annað eða jafnvel að gera hlutina verri en áður. #4: Niðurstaðan Stundum leiða fyrstu fjögur atriðin okkur að þeirri niðurstöðu að það er langbest fyrir okkur að gera ekki neitt. Að mögulega voru þessar hugsanir okkar einfaldlega óþarfar, við að gera úlfalda úr mýflugu, eitthvað illa fyrirkölluð eða viðkvæm í dag. En stundum leiða fyrstu fjögur atriðin okkur að þeirri niðurstöðu að best sé að leysa úr málunum hratt og vel og fagmannlega, þannig að okkur líði vel á eftir, við séum stolt af okkur sjálfum og örugg um að okkur tókst að leysa úr málum þannig að allir geti sátt við unað. Nú er bara að taka ákvörðun um næstu skref í takt við þessa niðurstöðu.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Að takast á við sjokkerandi breytingar í vinnunni Það er mannlegt að líða best í því umhverfi sem við þekkjum. Og alveg jafn mannlegt að finna til óöryggis eða uppnáms þegar miklar breytingar eru boðaðar. 13. júní 2025 07:02 Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni „Það getur svo sem vel verið að einhverjir vinnuveitendur hugsi sem svo; Mér er skítsama hvort fólk eigi einhvern besta vin í vinnunni, ég vil bara að fólk sé að vinna!“ nefnir Tómas Bjarnason sviðstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar Gallup sem dæmi um viðhorf vinnuveitanda sem telur það ekki sitt hlutverk að spá í hvort starfsfólk eigi sinn besta vin í vinnunni. 12. júní 2025 07:00 Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Það er oft sagt að á Íslandi séu stjórnendur eingöngu í stjórnendahlutverkinu í hjáverkum. Svona til viðbótar við að gera allt annað; Vinna í sínum verkefnum og afkasta. Vera jafnvel bestur í liðinu. 6. júní 2025 07:16 Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Til fjölda ára hafa rannsóknir sýnt að karlmenn eru líklegri til að láta vaða og sækja um störf, þótt þeir uppfylli ekki allar hæfniskröfur. Konur eru aftur á móti líklegar til að sækja ekki um störf nema þær uppfylli hvert einasta atriði sem listað er upp og helst rúmlega það. 2. júní 2025 07:00 Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni Við þekkjum öll orðatiltækið: Að láta verkin tala. Sem er reyndar nokkuð vinsælt orðatiltæki og rímar vel við þá sannfæringu fólks um að einbeita sér frekar að því að gera vel í vinnu en að láta taka eftir sér. 23. maí 2025 07:03 Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Að takast á við sjokkerandi breytingar í vinnunni Það er mannlegt að líða best í því umhverfi sem við þekkjum. Og alveg jafn mannlegt að finna til óöryggis eða uppnáms þegar miklar breytingar eru boðaðar. 13. júní 2025 07:02
Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni „Það getur svo sem vel verið að einhverjir vinnuveitendur hugsi sem svo; Mér er skítsama hvort fólk eigi einhvern besta vin í vinnunni, ég vil bara að fólk sé að vinna!“ nefnir Tómas Bjarnason sviðstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar Gallup sem dæmi um viðhorf vinnuveitanda sem telur það ekki sitt hlutverk að spá í hvort starfsfólk eigi sinn besta vin í vinnunni. 12. júní 2025 07:00
Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Það er oft sagt að á Íslandi séu stjórnendur eingöngu í stjórnendahlutverkinu í hjáverkum. Svona til viðbótar við að gera allt annað; Vinna í sínum verkefnum og afkasta. Vera jafnvel bestur í liðinu. 6. júní 2025 07:16
Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Til fjölda ára hafa rannsóknir sýnt að karlmenn eru líklegri til að láta vaða og sækja um störf, þótt þeir uppfylli ekki allar hæfniskröfur. Konur eru aftur á móti líklegar til að sækja ekki um störf nema þær uppfylli hvert einasta atriði sem listað er upp og helst rúmlega það. 2. júní 2025 07:00
Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni Við þekkjum öll orðatiltækið: Að láta verkin tala. Sem er reyndar nokkuð vinsælt orðatiltæki og rímar vel við þá sannfæringu fólks um að einbeita sér frekar að því að gera vel í vinnu en að láta taka eftir sér. 23. maí 2025 07:03