Þjálfari Íslendingaliðsins í veikindaleyfi eftir yfirliðið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. maí 2025 08:32 Christian Berge á að taka því rólega á næstunni. getty/Igor Kralj Christian Berge, þjálfari Noregsmeistara Kolstad í handbolta, er farinn í veikindaleyfi. Hann hné niður á hliðarlínunni í leik Kolstad og Elverum í fyrradag.
Gera þurfti hlé á leiknum þegar Berge hné niður í seinni hálfleik. Hugað var að þjálfaranum áður en farið var með hann út af vellinum í hjólastól. Eftir leikinn var greint frá því að Berge væri með gáttatif, sem lýsir sér í óreglulegum og hröðum hjartslætti, og hefði misst stjórn á líkamanum. Framkvæmdastjóri Kolstad, Jostein Sivertsen, hefur greint frá því að Berge sé kominn í ótímabundið veikindaleyfi. Að sögn fjölmiðlafulltrúa Kolstad, Harald Pedersen, ætlaði Berge að mæta til vinnu á hádegi í gær en hafi verið uppgefinn þegar hann vaknaði. Kolstad vann leikinn, 31-28, og tryggði sér þar með norska meistaratitilinn þriðja árið í röð. Fimm Íslendingar leika með Kolstad; Sigvaldi Guðjónsson, sem er fyrirliði liðsins, bræðurnir Arnór Snær og Benedikt Gunnar Óskarssynir, Sveinn Jóhannsson og Sigurjón Guðmundsson. Berge var lengi þjálfari norska karlalandsliðsins áður en hann tók við Kolstad fyrir þremur árum. Mikið hefur verið lagt í lið Kolstad og sterkir leikmenn fengnir, meðal annars Sander Sagosen. Þrátt fyrir að hafa unnið þrjá meistaratitla heima fyrir í röð hefur Kolstad ekki gert sig gildandi í Meistaradeild Evrópu og Sagosen fór aftur til Álaborgar í febrúar. Norski landsliðsmarkvörðurinn Torbjørn Bergerud er einnig á förum frá Kolstad til Wisla Plock þar sem hann á að leysa Viktor Gísla Hallgrímsson af hólmi.
Norski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira