Strákarnir hans Guðmundar með frábæran stórsigur á GOG Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2025 18:11 Guðmundur Guðmundsson var örugglega mjög sáttur með sína menn í kvöld. Vísir/Vilhelm Íslensku þjálfararnir Guðmundur Guðmundsson og Arnór Atlason fögnuðu báðir góðum sigrum í danska handboltanum í kvöld.
Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia sýndu og sönnuð styrk sinn í kvöld með frábærum sigri á liðinu í öðru sæti dönsku deildarinnar. Fredericia vann þá átta marka heimsigur á GOG, 28-20, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15-11. Það var ekki aðeins sigurinn heldur en stærð hans sem vekur athygli. GOG er í öðru sæti deildarinnar en Fredericia var í því fimmta. Fredericia hafði aðeins náð í einn sigur úr síðustu fimm deildarleikjum sínum þannig að það var vel fagnað eftir þennan frábæra sigur. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark í leiknum og fékk líka eina brottvísun. Mads Kjeldgaard átti stórleik og skoraði tíu mörk. Íslendingaliðið Ribe-Esbjerg tapaði með þriggja marka mun á heimavelli á móti Arnór Atlasyni og lærisveinum hans í Holstebro. Holstebro vann leikinn 30-27, eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 16-15. Elvar Ásgeirsson nýtti öll þrjú skotin sín og gaf einnig fimm stoðsendingar á félaga sína. Ágúst Elí Björgvinsson byrjaði á bekknum en kom inn í markið í seinni hálfleik og varði þá 5 af 11 skotum sem komu á hann þar af varði hann tvö víti. Ágúst Elí varði 45 prósent skota sem komu á hann en því miður fyrir hann þá dugði það ekki til.
Danski handboltinn Mest lesið Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Íslenski boltinn Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Stelpurnar okkar í neðsta styrkleikaflokki fyrir EM Sjá meira