Átján ára og kominn með 33 marka forskot á toppnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2025 20:16 Baldur Fritz Bjarnason hefur spilað frábærlega í síðustu leikjum ÍR-inga. @ir_handbolti ÍR-ingurinn Baldur Fritz Bjarnason er orðinn langmarkahæstur í Olís deild karla í handbolta. Baldur hefur skorað 153 mörk í 16 leikjum eða 9,6 mörk að meðaltali í leik. Hann er nú kominn með 33 marka forskot á næsta mann sem er Framarinn Reynir Þór Stefánsson með 120 mörk í 16 leikjum eða 7,5 mörk að meðaltali í leik. Baldur hefur byrjað nýtt ár með miklum krafti. Hann skoraði 13 mörk úr 19 skotum (68%) á móti KA um helgina og var með 14 mörk úr 18 skotum (78%) á móti Aftureldingu. Hann skoraði síðan 13 mörk úr 21 skoti á móti Haukum (62%) í síðasta leik ÍR fyrir jóla og HM-frí. Baldur hefur því skorað 13,3 mörk að meðaltali í leik í síðustu þremur deildarleikjum og með því hækkað meðalskor sitt á öllu tímabilinu úr 8,7 mörkum í leik í 9,6 mörk í leik. Baldur hefur skorað 42 marka sinna úr vítum og er ekki með flest mörk utan af velli. Reynir Þór hefur skorað 118 mörk utan af velli eða sjö mörkum meira en Baldur. Sá þriðji til að skora yfir hundrað mörk utan af velli er Haukamaðurinn Skarphéðinn Ívar Einarsson sem hefur skorað öll 104 mörk sín utan af velli. Markahæstir í Olís deild karla 10. febrúar 2025: (Tölur frá HB Statz) 1. Baldur Fritz Bjarnason, ÍR 153/42 víti 2. Reynir Þór Stefánsson, Fram 120/2 3. Birgir Steinn Jónsson, Aftureldingu 107/23 4. Jón Ómar Gíslason, Gróttu 106/34 5. Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukum 104 6. Björgvin Páll Rúnarsson, Fjölni 92/32 7. Úlfar Páll Monsi Þórðarson, Val 91/27 7. Bernard Kristján Darkoh, ÍR 91 9. Dagur Árni Heimisson, KA 82/3 10. Ihor Kopyshynskyi, Aftureldingu 82/5 Olís-deild karla ÍR Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport Fleiri fréttir Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira
Baldur hefur skorað 153 mörk í 16 leikjum eða 9,6 mörk að meðaltali í leik. Hann er nú kominn með 33 marka forskot á næsta mann sem er Framarinn Reynir Þór Stefánsson með 120 mörk í 16 leikjum eða 7,5 mörk að meðaltali í leik. Baldur hefur byrjað nýtt ár með miklum krafti. Hann skoraði 13 mörk úr 19 skotum (68%) á móti KA um helgina og var með 14 mörk úr 18 skotum (78%) á móti Aftureldingu. Hann skoraði síðan 13 mörk úr 21 skoti á móti Haukum (62%) í síðasta leik ÍR fyrir jóla og HM-frí. Baldur hefur því skorað 13,3 mörk að meðaltali í leik í síðustu þremur deildarleikjum og með því hækkað meðalskor sitt á öllu tímabilinu úr 8,7 mörkum í leik í 9,6 mörk í leik. Baldur hefur skorað 42 marka sinna úr vítum og er ekki með flest mörk utan af velli. Reynir Þór hefur skorað 118 mörk utan af velli eða sjö mörkum meira en Baldur. Sá þriðji til að skora yfir hundrað mörk utan af velli er Haukamaðurinn Skarphéðinn Ívar Einarsson sem hefur skorað öll 104 mörk sín utan af velli. Markahæstir í Olís deild karla 10. febrúar 2025: (Tölur frá HB Statz) 1. Baldur Fritz Bjarnason, ÍR 153/42 víti 2. Reynir Þór Stefánsson, Fram 120/2 3. Birgir Steinn Jónsson, Aftureldingu 107/23 4. Jón Ómar Gíslason, Gróttu 106/34 5. Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukum 104 6. Björgvin Páll Rúnarsson, Fjölni 92/32 7. Úlfar Páll Monsi Þórðarson, Val 91/27 7. Bernard Kristján Darkoh, ÍR 91 9. Dagur Árni Heimisson, KA 82/3 10. Ihor Kopyshynskyi, Aftureldingu 82/5
Markahæstir í Olís deild karla 10. febrúar 2025: (Tölur frá HB Statz) 1. Baldur Fritz Bjarnason, ÍR 153/42 víti 2. Reynir Þór Stefánsson, Fram 120/2 3. Birgir Steinn Jónsson, Aftureldingu 107/23 4. Jón Ómar Gíslason, Gróttu 106/34 5. Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukum 104 6. Björgvin Páll Rúnarsson, Fjölni 92/32 7. Úlfar Páll Monsi Þórðarson, Val 91/27 7. Bernard Kristján Darkoh, ÍR 91 9. Dagur Árni Heimisson, KA 82/3 10. Ihor Kopyshynskyi, Aftureldingu 82/5
Olís-deild karla ÍR Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport Fleiri fréttir Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira