Markahrókur City varð fyrir kvenhatri og rasisma Sindri Sverrisson skrifar 5. febrúar 2025 09:03 Khadija Shaw á ferðinni í leiknum gegn Arsenal á sunnudaginn. Getty Manchester City hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að félaginu sé „ofboðið“ vegna þess níðs sem markamaskínan Khadija Shaw mátti þola eftir að City tapaði gegn Arsenal á sunnudaginn í ensku ofurdeildinni í fótbolta.
Hin jamaíska Shaw, sem er 28 ára gömul, varð fyrir bæði kynþáttahatri og kvenhatri eftir leikinn við Arsenal, sem var hennar hundraðasti leikur fyrir City en hún kom inn á sem varamaður í 4-3 tapi á heimavelli. Shaw, sem hefur skorað 86 mörk fyrir City og verið valin leikmaður ársins hjá félaginu tvö ár í röð, ákvað að deila ekki skjáskotum af þeim viðbjóðslegu skilaboðum sem hún hefur fengið send. Hún vill einfaldlega ekki veita þeim sem skilaboðin sendu neina athygli. Í yfirlýsingu frá City segir að skilaboðin hafi hins vegar verið send til lögreglu og að málið verði rannsakað. „Mismunun af hvaða tagi sem er, innan vallar eða á netinu, verður aldrei liðin og á ekki heima neins staðar,“ segir í yfirlýsingunni og einnig: „Bunny [gælunafn Shaw] hefur ákveðið að deila skilaboðunum ekki opinberlega til þess að forðast að veita þeim grimmu einstaklingum sem þau sendu athygli. Rannsókn verður sett af stað og félagið mun veita Bunny fullan stuðning eftir þann viðbjóð sem hún hefur þurft að þola.“
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira