Handbolti

„Ég er ekkert viss um að við náum aftur þessari geð­veiki“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson á æfingu liðsins í gær en strákarnir fá krefjandi verkefni í kvöld.
Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson á æfingu liðsins í gær en strákarnir fá krefjandi verkefni í kvöld. Vísir/Vilhelm

Íslenska handboltalandsliðið hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína á heimsmeistaramótinu en í kvöld reynir á liðið á móti öðru liði með fullt hús.

Ísland mætir þá Egyptalandi í fyrsta leik milliriðilsins en Egyptar unnu Króata í úrslitaleiknum í sínum riðli á meðan íslensku strákarnir unnu Slóvena.

Einar Jónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson mættu til Stefáns Árna Pálssonar í Besta sætið eftir magnaðan sigur Íslands á Slóveníu. Þeir ræddu líka framhaldið og leikinn við Egypta í kvöld.

„Eftir kvöldið í kvöld þá leggst þessi leikur bara hrikalega vel í mig. Ég er ekkert viss um að við náum aftur þessari geðveiki en Jesús minn hvað ég vona það“,“ sagði Ásgeir Örn.

„Ég held að við séum að fara að spila á móti jafnvel enn þá betra liði á móti Egyptunum. Þeir eru ógeðslega góðir, með rosalega líkamlega sterka leikmenn og þessi markvörður þeirra er góður,“ sagði Ásgeir.

„Þeir eru með spænska þjálfara sem er algjör heili í þessum bransa. Hann er ógeðslega strangur og þetta er allt mjög skipulagt. Það eru engar tilviljanir neins staðar í leiknum hjá þeim. Hann á eftir að finna einhverjar lausnir sem við eigum eftir að vera í vandræðum með,“ sagði Ásgeir.

„Þeir eru líka frábærir varnarlega, eru alveg nautsterkir og fljótir á fótunum. Ali er síðan búinn að vera frábær í markinu. Okkur eru allir vegir færir í þessu,“ sagði Einar.

„Ef við spilum áfram svona og náum að vera aðeins betri sóknarlega. Við þurfum aðeins að vaxa þar. Þá bara vinnum við Egyptana,“ sagði Einar.

Það má sjá hlusta á alla umræðuna um leik kvöldsins sem allan þáttinn af Besta sætinu hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×