Leikjavísir

Ný Switch kynnt til leiks

Samúel Karl Ólason skrifar
Nýja Switch leikjatölvan.
Nýja Switch leikjatölvan. Nintendo

Nintendo, japanska tölvuleikjafyrirtækið víðfræga, kynnti í dag nýja leikjatölvu til leiks. Hún kallast Nintendo Switch 2 og á að sjást í hillum verslana einhvern tímann á þessu ári. 

Forvarsmenn fyrirtækisins hafa heldur ekki sagt hvað leikjatölvan muni kosta. Samkvæmt Verge er þó ljóst að eigendur muni geta spilað einhverja gamla leiki í nýju tölvunni.

 Frekari upplýsingar verða veittar á kynningu þann 2. apríl.

Nintendo hefur birt stiklu sem sýnir útlit tölvunnar.

Í stiklunni má sjá vísbendingar um nýjan Mario Kart leik, sem er meðal vinsælustu leikjum upprunalegu tölvunnar.

Undanfarna mánuði hafa hvísl um nýja Switch heyrst nokkuð víða og oft. Upprunalega tölvan var fyrst gefin út á heimsvísu snemma árs 2017 og hafa margir beðið með eftirvæntingu eftir nýrri Switch.

Sjá einnig: Íslendingar biðu í frostinu í nótt eftir Nintendo Switch

Switch er í raun leikja-spjaldtölva sem einnig er hægt að tengja við sjónvarp. Nýja tölvan er mjög svipuð þeirri fyrri en hún er aðeins stærri og virðist sem stýripinnarnir festist við hana með seglum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.