Enski boltinn

Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða al­gjört rugl“

Sindri Sverrisson skrifar
Marcus Rashford var í leikmannahópi Manchester United í síðasta leik, gegn Newcastle, en Rúben Amorim hleypti honum þó ekki inn á völlinn.
Marcus Rashford var í leikmannahópi Manchester United í síðasta leik, gegn Newcastle, en Rúben Amorim hleypti honum þó ekki inn á völlinn. Getty/Martin Rickett

Þó að Marcus Rashford hafi sagst í viðtali vilja „nýja áskorun“ og virðist á förum frá Manchester United þá sá hann ástæðu til að leiðrétta frétt The Sun í upphafi nýs árs.

Enska götublaðið The Sun, sem oft þykir fara frjálslega með sannleikann, sló því upp í fyrirsögn seint á gamlárskvöld að Rashford væri kominn í viðræður við nýja umboðsskrifstofu, í viðleitni sinni við að komast í burtu frá Manchester United.

Blaðið sagði í grein sinni að Rashford væri í viðræðum við Stellar umboðsskrifstofuna, sem meðal annars hefði komið Gareth Bale frá Tottenham til Real Madrid fyrir 86 milljónir punda árið 2013. Von Rashford væri sú að hann kæmist í nýtt félag núna í janúarglugganum.

Með bróður sinn sem umboðsmann

„Það er búið að skrifa mikið af falsfréttum síðustu vikur en strákar þetta er að verða algjört rugl. Ég hef aldrei hitt neina umboðsskrifstofu og er ekki með nein plön um að gera það…“ skrifaði Rashford á Instagram.

Marcus Rashford birti skjáskot af frétt The Sun og sagði hana falsfrétt.Skjáskot/Instagram

Dwaine Maynard, bróðir Rashford, er og hefur verið umboðsmaður þessa 27 ára gamla sóknarmanns.

Rashford fékk á ný sæti í leikmannahópi United í síðasta leik ársins, þegar liðið tapaði 2-0 fyrir Newcastle. Hann fékk þó ekkert að spila og hefur ekki leikið fyrir United síðan 12. desember.

Ruben Amorim, stjóri United, tefldi Rashford fram í byrjunarliði í fyrstu tveimur deildarleikjum liðsins undir sinni stjórn, og skoraði Rashford þrjú mörk í þessum leikjum.

Hann var hins vegar, ásamt Alejandro Garnacho, tekinn út úr leikmannahópnum fyrir 2-1 sigurinn gegn Manchester City 15. desember, og var utan hóps í fjórum leikjum. 

Eftir leikinn við City fór Rashford í viðtal og var ekki annað að heyra á honum en að hann stefndi á að yfirgefa United:

„Þegar ég fer þá verða engar sárar tilfinningar. Þið munuð ekki fá nein neikvæð ummæli frá mér varðandi Manchester United. Þannig er ég sem manneskja,“ sagði Rashford og bætti einnig við:

„Ég tel sjálfur að ég sé tilbúinn í nýja áskorun og næstu skref.“

United hefur nú tapað síðustu þremur deildarleikjum sínum, samtals 7-0, gegn Bournemouth, Wovles og Newcastle, eftir að hafa fallið úr leik í deildabikarnum gegn Tottenham með 4-3 tapi.

Liðið er í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sjö stigum frá fallsæti, og á fyrir höndum deildarleik við topplið Liverpool á sunnudaginn og svo bikarleik við Arsenal 12. janúar.


Tengdar fréttir

Rashford laus úr útlegð

Enski fótboltamaðurinn Marcus Rashford er kominn inn í leikmannahóp Manchester United á nýjan leik eftir að hafa verið hafður utan hóps í síðustu fjórum leikjum.

Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford

Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, er hissa á þeim ákvörðunum sem fólkið í kringum Marcus Rashford, leikmann liðsins, virðist vera að taka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×