Enski boltinn

Getur ekki spilað fót­bolta næsta árið eftir bíl­slysið

Sindri Sverrisson skrifar
Eins og sjá má er Michail Antonio hreinlega heppinn að vera á lífi eftir slysið, því bíllinn hans gjöreyðilagðist.
Eins og sjá má er Michail Antonio hreinlega heppinn að vera á lífi eftir slysið, því bíllinn hans gjöreyðilagðist. Twitter/Getty

Fótboltamaðurinn Michail Antonio, leikmaður West Ham og jamaíska landsliðsins, verður lengi frá keppni eftir hræðilegt bílslys um helgina.

„Hvar er ég? Hvað er að gerast? Í hvaða bíl er ég?“ á Antonio að hafa spurt vegfaranda sem kom honum til hjálpar, eftir að þessi 34 ára framherji lenti í hræðilegu bílslysi á laugardaginn. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan skemmdist Ferrari-bifreið hans afar illa og þurfti að klippa Antonio út úr bílnum.

West Ham greindi frá því í gær að hann hefði fótbrotnað við áreksturinn en að hann hefði nú gengist undir vel heppnaða aðgerð á sjúkrahúsi.

„Allir hjá félaginu óska Michail skjóts bata og þakkar fótboltafjölskyldunni innilega fyrir þann mikla stuðning sem sýndur hefur verið eftir fréttir gærdagsins,“ sagði í yfirlýsingu West Ham þar sem sjúkrafólki og öðrum sem fyrst komu á vettvang var einnig þakkað sérstaklega.

Breskir miðlar, til að mynda The Guardian og The Sun, segja að Antonio, sem er 34 ára og fjögurra barna faðir, verði frá keppni í að minnsta kosti eitt ár. Hann verður áfram á sjúkrahúsi næstu daga þar sem fylgst verður áfram með líðan hans.

Ljóst er að Antonio verður hvergi nálægt þegar West Ham mætir Wolves í kvöld, í ensku úrvalsdeildinni. Hann kom til Hamranna frá Nottingham Forest árið 2015 og hefur skorað 83 mörk og átt 41 stoðsendingu, í 323 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×