Rooney ræður fyrrum aðstoðarmann Sir Alex til starfa Ágúst Orri Arnarson skrifar 9. desember 2024 07:03 Wayne Rooney og Mike Phelan þekkjast vel frá tíma þeirra saman í Manchester. Mike Phelan hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Waynes Rooney hjá Plymouth Argyle, liðinu sem landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson leikur með í næstefstu deild Englands.
Phelan og Rooney þekkjast frá tíma þeirra saman hjá Manchester United. Phelan var aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson frá 2008 og þar til sá síðarnefndi hætti störfum árið 2013. Phelan sneri svo aftur til félagsins árið 2018, þá sem aðstoðarmaður Ole Gunnar Solskjær. Þegar hann lét af störfum í desember 2021 og Ralf Rangnick tók við var Phelan lækkaður um tign. Hann hætti svo störfum hjá Manchester United skömmu síðar og hefur ekki komið að þjálfun síðan þá. I’m pleased to announce that I’ll be #ReUnited with @WayneRooney at @Argyle 👊 Looking forward to to this new challenge. pic.twitter.com/Ckp28ArP0r— Mike Phelan (@Mike_Phelan_1) December 8, 2024 „Þetta er þjálfari sem ég þekki vel frá mínum tíma sem leikmaður og við áttum í góðu samstarfi. Hann býr yfir dýrmætri reynslu og hefur starfað á hæsta stigi fótboltans. Ég er mjög ánægður að fá hann til starfa hjá Argyle og hlakka til að hefja störf með honum,“ sagði Rooney um ráðninguna. Plymouth Argyle hefur aðeins unnið fjóra af fyrstu átján deildarleikjum tímabilsins og er í fallbaráttu. Leik þeirra gegn Oxford, sem átti að fara fram í gær, var frestað vegna veðurs. Guðlaugur Victor Pálsson hefur komið við sögu í átta leikjum, þar af sex sem byrjunarliðsmaður.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Íslenski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Fleiri fréttir Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Sjá meira