Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Þriðjudaga og fimmtudaga vöknum við hjónin kl. 6:15 til að mæta í pyntingar hjá Hilmari Þór þjálfara í Laugum en hina dagana vakna ég klukkan sjö.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
Vek eiginkonuna og gef henni kaffi og því næst klæði mig í hjólaspandex gallann og allt tilheyrandi þar sem ég hjóla alla daga, allan ársins hring, í og úr vinnu.“
Hvað myndi fjölskyldan gefa þér í einkunn sem handlaginn heimilisfaðir?
„Alveg 10 af 10 mögulegum, ég er með svokallað staðbundið sveinspróf í smíðum, húsamálun og rafvirkjun. Hef virkilega gaman af því að sinna svona verkum þar sem reynir á útsjónarsemi og fínvinnu.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Ég er staddur núna á háanna tíma í vinnunni þar sem við erum að sinna árlegri endurnýjun flestra viðskiptavina, samhliða því að gera samninga við erlenda endurtryggjendur TM sem einnig endurnýjast um áramót. Ég er því til frekar lítils gagns að jafnaði í jólaundirbúningi heima fyrir.
En önnur verkefni eru svo að sinna barnabörnunum tveimur sem eru eins árs og fjögurra ára, það er alveg meiri háttar gaman og svo er ég „die hard“ stuðningsmaður ÍR í körfubolta og legg allt sem ég get að mörkum þar í baráttunni sem við erum í um þessar mundir.
Körfuboltabakterían sem ég fékk ungur í uppvextinum í Stykkishólmi er alveg hreint ódrepandi.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Að stórum hluta ræða ég ekki mikið um hvað dagurinn ber í skauti sér þar sem viðskiptavinir eru alltaf í fyrsta sæti og hafa forgang um þjónustu og tíma.
En ég vinn mikið eftir „to do“ listum sem ég er gjarnan með tilbúna í upphafi viku og reyni eins og ég get að komast í gegnum en stundum þarf að láta eitthvað flæða á milli vikna, en þessi aðferð hefur reynst mér gríðarlega vel. Læt svo reminder bögga mig þar til ég er búinn klára þau mál sem eru á oddinum.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Alltaf á milli klukkan tíu og ellefu, helst ekki seinna, það er góð uppskrift að ná sjö til átta klukkustundir í svefn, plús að hjóla í vinnuna, þá mætir maður kátur og hress alla daga.“