Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“
![Hagfræðingar Arion banka benda á að vaxtalækkunin hafi verið í takt við væntingar og ætti því að ekki valda neinum titringi nú þegar blikur séu á lofti á vinnumarkaði og aðeins níu dagar í kosningar til Alþingis.](https://www.visir.is/i/4CA6DF98D4A4637C890FB066E3F7DED69CA25A5CA9246E2A460DD0BEEDF22887_713x0.jpg)
Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/03D8634CF94371DB9E908076FA7F085AD81C371BB3831DBC64470396911400EB_308x200.jpg)
Vaxtalækkunin í takt við væntingar en þrálát verðbólga kallar áfram á „varkárni“
Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka vexti um 50 punkta er í samræmi við spár flestra greinenda og markaðsaðila en í yfirlýsingu nefndarinnar, sem er fremur hlutlaus, er undirstrikað að þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar yfir markmiði kalli áfram á „varkárni.“ Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er útlit fyrir engan hagvöxt í ár og þá mun verðbólgan ganga hraðar niður á næsta ári en áður var talið.