Enski boltinn

Of ungur fyrir Man. Utd að mati Hareide

Sindri Sverrisson skrifar
Ruben Amorim tekur við Manchester United 11. nóvember en Åge Hareide efast um að Portúgalinn hafi það sem til þarf.
Ruben Amorim tekur við Manchester United 11. nóvember en Åge Hareide efast um að Portúgalinn hafi það sem til þarf. Samsett/Getty

Åge Hareide, klandsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, segir að nýr stjóri Manchester United, Ruben Amorim, sé einfaldlega of ungur fyrir starfið.

Hinn 39 ára gamli Amorim hefur gert frábæra hluti með Sporting Lissabon og unnið tvo Portúgalsmeistaratitla, en eftir níu daga tekur hann við sem knattspyrnustjóri United.

Hareide hafði mælt með því að United leitaði aftur til Ole Gunnars Solskjær, sem Hareide þekkir og þjálfaði hjá Molde undir lok síðustu aldar.

Forráðamenn United voru hins vegar með Amorim efstan á blaði og varð að ósk sinni með því að fá hann til félagsins.

„Mér finnst hann kannski of ungur. Þetta er án vafa eitt erfiðasta starfið í evrópskum fótbolta og þó að hann hafi staðið sig vel hjá Sporting þá hefur hann verið svolítið undir ratsjánni,“ sagði Hareide sem er fótboltasérfræðingur norska ríkismiðilsins NRK.

„Hann hefur sýnt hæfileika í Sporting. En portúgalska deildin snýst um fjögur lið, ef við erum sanngjarnir. Núna er hann að fara í ensku úrvalsdeildina sem er eitthvað allt annað,“ sagði Hareide.

Sá yngsti síðan Matt Busby tók við

Amorim verður yngsti stjóri United í 79 ár, eða frá því að sjálfur Sir Matt Busby var ráðinn til félagsins árið 1945, þá 36 ára gamall.

NRK fékk annan sérfræðing, Kristoffer Lökberg, til að tjá sig einnig um komu Portúgalans.

„Þetta er ungur stjóri, yngri en 40 ára. Það er eitt og sér sérstakt í svona stóru starfi. En hann hefur sýnt í Sporting að hann getur unnið titla,“ sagði Lökberg.

„Það er jákvætt hvað þetta gekk hratt. Það bendir til þess að stjórnendur hafi verið með skýra áætlun. Að því sögðu er hlægilegt að Ten Hag hafi fengið að halda áfram svona lengi. Þetta hefur legið í loftinu í marga mánuði,“ sagði Lökberg en Erik ten Hag hélt starfi sínu í sumar og var svo rekinn á mánudaginn síðasta.

Ruud van Nistelrooy stýrir United nú tímabundið og verður því við stjórnvölinn á morgun þegar United mætir Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×