Handbolti

Þakk­látir fyrir en sjá á eftir Aroni: „Út­­skýrði vel fyrir liðinu hvað væri í gangi“

Aron Guðmundsson skrifar
FH-ingar munu þurfa að fóta sig án Arons Pálmarssonar sem hefur samið við ungerska stórliðið Vezprém. Sigursteinn segir mikinn áhuga erlendis frá hafa verið fá Aroni allt frá því að hann gekk til liðs við FH á nýjan leik á sínum tíma
FH-ingar munu þurfa að fóta sig án Arons Pálmarssonar sem hefur samið við ungerska stórliðið Vezprém. Sigursteinn segir mikinn áhuga erlendis frá hafa verið fá Aroni allt frá því að hann gekk til liðs við FH á nýjan leik á sínum tíma Vísir/Samsett mynd

Karla­lið FH í hand­bolta tekur á móti sænsku meisturunum í Sa­vehof í 3.um­ferð Evrópu­deildarinnar í Kapla­krika í kvöld. Um er að ræða fyrsta leik FH liðsins eftir brott­hvarf stór­stjörnunnar Arons Pálmars­sonar. Sigur­steinn Arn­dal, þjálfari FH, segir alla í FH liðinu sýna Aroni skilning með á­kvörðun hans og sam­gleðjast honum. Fram undan sé hins vegar mikil vinna sem felst í því að reyna fylla í hans skarð.

Greint var frá því í gær að Aron hefði gengið til liðs við ung­verska stór­liðið Vezprém og skrifar hann undir samning sem gildir til sumarsins 2026. Aron gekk til liðs við upp­eldis­fé­lag sitt FH fyrir síðasta tíma­bil og ætlaði hann sér að verða hluti af því að koma Ís­lands­meistara­titlinum aftur í Kapla­krika. Það gerði hann og nú á miðju tíma­bili hefur hann á­kveðið að taka stökkið aftur út í at­vinnu­mennskuna. Allt frá því að Aron gekk til liðs við FH segir Sigur­steinn Arn­dal, þjálfari liðsins, að mikill á­hugi hafi verið á hans kröftum er­lendis frá.

Aron í leik með FH vísir/Diego

„Hann kom hingað til upp­eldis­fé­lagsins með stór mark­mið og stóð við þau,“ segir Sigur­steinn í sam­tali við Vísi. „Skilaði frá­bærum titli í hús á­samt frá­bæru FH liði. Ég held að það sé ó­hjá­kvæmi­legt með mann af þessu kalí­beri að það verður alltaf mikill á­hugi á honum. Aron fór í gegnum sína hlið á þessu með liðinu. Ég ætla ekkert að fara nánar út í það sem að hann sagði þar. Hann út­skýrði það bara vel fyrir liðinu hvað væri í gangi. Það er ekkert nema skilningur frá okkur í hans garð. Ég held við verðum líka bara að leyfa okkur að­eins að stoppa og vera þakk­lát fyrir þann tíma sem við fengum með honum. Hann skilaði frá­bæru starfi í Krikanum.

Það er engin tilviljun að baki þeim árangri sem Aron hefur náð á sínum handboltaferli. Hann elskar áskoranir og stenst þær nánast alltaf og það er ástæða fyrir því. Hann býr yfir frábæru hugarfari og er góður í því að gera aðra leikmenn í kringum sig góða. Fá þá til að trúa á sjálfa sig og verkefnið.““

Aron snýr nú aftur í her­búðir Vezprém þar sem að hann hittir fyrir fé­laga sinn úr ís­lenska lands­liðinu, Bjarka Má Elís­son, sem og fyrr­verandi þjálfara sinn hjá Barcelona Xa­vi­er Pascu­al.

„Við sam­gleðjumst með Aron í því sem að hann er að taka sér fyrir hendur núna. Á sama tíma gerum við okkur grein fyrir því að fram undan er mikil vinna fyrir okkur sem felst í því að við náum vopnum okkar aftur. Aug­ljós­lega, þegar að svona öflugur leik­maður hverfur á braut, þá myndast eitt­hvað bil sem að þarf að brúa. Við þurfum bara að finna leiðir í þessu í sam­einingu. Við erum enn með vel skipað lið. Lið sem hefur að mörgu leiti verið lengi saman í bland við unga og efni­lega stráka sem hafa verið að koma mjög sterkir inn síðustu vikur. 

Það er núna okkar verk­efni að halda vel utan um þennan hóp. Þá er ég fullur bjart­sýni. Við þurfum að koma okkur í gegnum smá tíma­bil núna þar sem að við erum undir gríðar­legu á­lagi. Við segjum það bara eins og það er. Tíma­bil líkt og Vals­liðið prófaði fyrir tveimur árum síðan. Þetta er mikið fyrir á­huga­manna­lið að taka þátt í þessari keppni auk þess að halda fókus heima. Við munum lenda á löppunum eftir þetta.“

Nýr dagur, nýr mótherji

Og fyrsta verk­efnið eftir brott­hvarf Arons gerist vart stærra. Sænsku meistararnir í Sa­vehof mæta í Kapla­krika í kvöld í 3.um­ferð Evrópu­deildarinnar.

„Við gerum okkur bara grein fyrir því að þessi leikur, eins og allir aðrir leikir í riðlinum, eru bara of­boðs­lega erfiðir. Í kvöld erum við að eiga við sænsku meistarana. Það gefur auga­leið að þetta er öflugt lið eins og hin tvö liðin í riðlinum. En að því sögðu erum við í þessari keppni til þess að taka það besta út úr henni. Reyna að bæta okkar lið. Þess vegna mætum við brattir til leiks.“

Bæði lið eru án stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í keppninni og hafa leikið við sömu and­stæðinga. FH tapaði með ní­tján marka mun gegn þýska stór­liðinu Gum­mers­bach á heima­velli í síðustu um­ferð. Það hefði alltaf verið til of mikils að ætlast af FH liðinu að bera sigur úr býtum gegn læri­sveinum Guð­jóns Vals Sigurðs­sonar en það var helst frammi­staða FH-inga í leiknum sem situr eftir og svíður. Eitt­hvað sem Hafn­firðingar vilja svara fyrir í kvöld.

„Gum­mers­bach liðið var frá­bært en tapið í þeim leik var ó­þarf­lega stórt. Menn vita það alveg sjálfir. Það voru of margir hlutir í þeim leik sem féllu hver af öðrum. Án þess að leita í ein­hverjar af­sakanir þá spiluðum við ein­fald­lega ekki vel. Það er nýr dagur í dag. Nýr mót­herji. Við ætlum okkur, bara eins og þegar að við mætum í alla leiki, að mæta til að gera eitt­hvað gott.“

Lið Sa­vehof er vel skipað og beinast mörg augu að fær­eyska ungstirninu Óla Mittún.

„Óli Mittún er frá­bær leik­maður og þetta er bara gríðar­lega öflugt lið sem að valtaði yfir sænsku deildina á síðasta tíma­bili. Spilaði skemmti­legan og hraðan hand­bolta. Þetta lið er með margar öðru­vísi og skemmti­legar út­færslur í sjö á sex sóknar­leik. Eitt­hvað nýtt sem að við fáum að glíma við. Þeir koma með sitt lítið af hverju að borðinu. Hlaupa mikið. Pressa and­stæðinginn. Við þurfum að eiga ein­hver svör við þessu.“

Leikur FH og Sa­vehof í Evrópu­deildinni í hand­bolta hefst klukkan korter í sjö í Kapla­krika í kvöld. Leiknum verður lýst í beinni texta­lýsingu hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×