Tíska og hönnun

Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Aníta Björt og Sigrún Guðný reka verslunina Mamma Mia Vintage.
Aníta Björt og Sigrún Guðný reka verslunina Mamma Mia Vintage. Aðsend

Ofurskvísurnar Aníta Björt og Sigrún Guðný lifa fyrir tískuna og reka nytjaverslunina Mamma Mia Vintage í miðbæ Reykjavíkur. Þær stóðu fyrir tískuteiti á dögunum þar sem skvísur bæjarins mættu í sínu fínasta pússi.

Aníta og Sigrún Guðný hafa ferðast víða um heiminn síðastliðin ár til þess að sérvelja vörur fyrir verslun þeirra og vefverslun. Þær byrjuðu á að opna svokallaða pop-up verslun en eru nú búnar að opna Mamma Mia Vintage á Bergstaðastræti 2 samhliða vefversluninni.

„Við kynntust úti í Mílanó þar sem við vorum báðar í námi. Við vorum mikið að ferðast um og fara á markaði að „thrifta“ eða finna notaðar flíkur og þannig byrjaði Mamma Mia í rauninni. 

Okkur fannst vanta nytjaverslun (e. vintage) með sérvöldum vörum hérna heima þannig að við ákváðum bara að fara „all in“ í þetta og héldum okkar fyrsta pop-up síðasta sumar.“

Þær segja að reksturinn hafi í kjölfarið vaxið hratt og gengið vel. 

„Tíska er eitthvað sem við höfum báðar alltaf haft áhuga á og það hefur bara aukist. Við tölum oft um það hvað við vorum með allt öðruvísi fatastíl áður en við kynntumst og byrjuðum með Mamma Mia. 

Núna er stíllinn okkar búinn að blandast einhvern veginn saman og við báðar fengið innblástur frá hvor annarri. Það er mögulega vegna þess að við eigum núna sameiginlegan fataskáp,“ segja þær kímnar og bæta við:

„Tíska hefur alltaf verið stór partur af okkar lífi og alltaf verið draumur að starfa á einhvern hátt í tískuheiminum.

Við deilum einnig þeim áhuga á því að taka ljósmyndir og stílisera fyrir myndatökur, það er eitthvað hefur látið vörumerkið okkar Mamma Mia Vintage skera sig úr og við gerum hlutina á einstakan hátt,“ segja skvísurnar. Þær segjast sérstaklega hrifnar af pelsum og öðru slíku og eru duglegar að rokka hinar ýmsu yfirhafnir.

„Við viljum að fólk geti verslað einstakar flíkur sem eru að eignast nýtt líf. Helsta markmið okkar er að hver sem er getur komið í verslun okkar og fundið sér fallega flík,“ segja þær.

Hér má sjá myndir frá tískuteitinu:

Það var líf og fjör í Mamma mia vintage og tískuáhugafólk flykktist að við að versla notaðar og smart flíkur.Aðsend
Ísabella Lena lét sig ekki vanta í teitið.Aðsend
Tískan er fjölbreyttur tjáningamáti og vilja forsvarskonur Mamma Mia að fjölbreyttir viðskiptavinir geti fundið eitthvað fyrir sig.Aðsend
Þessar voru í góðum gír.Aðsend
Pelsarnir eru í uppáhaldi hjá eigendum Mamma mia.Aðsend
Þessi tískufjölskylda var í góðum gír.Aðsend
Teitið var vel sótt.Aðsend
Aðsend
Pelsarnir voru vinsælir fyrir veturinn.Aðsend
Friðþóra kærasta Patriks var í tískustuði!Aðsend
Þessar mátuðu ýmsar flíkur.Aðsend
Skvísurnar fundu eitthvað við sitt hæfi.Aðsend
Anna Camilla grandskoðaði búðina.Aðsend
Það er stöðugt tískufjör á Bergstaðastræti 2.Aðsend
Tíska og knús.Aðsend
Aníta Björt og Sigrún Guðný eigendur og ofurskvísur.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×