Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2024 10:17 Haaland hefur byrjað tímabilið á Englandi stórkostlega. Hann er nú sagður vilja flytja sig til Spánar að tímabilinu loknum. Vísir/Getty Erling Haaland gæti verið að leika sitt síðasta tímabil með Manchester City. Fregnir á Spáni herma að Norðmaðurinn hafi áhuga á að spila í La Liga frá og með næsta tímabili.
Erling Haaland hefur byrjað tímabilið á Englandi algjörlega stórkostlega og er búinn að skora tíu mörk í sjö leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Haaland er á sínu þriðja tímabili með Manchester City en þar áður lék hann með þýska liðinu Dortmund í tvö ár og austurísaka félaginu RB Salzburg í eitt ár þar á undan. Nú greinir katalónska síðan El Nacional hins vegar óvænt frá því að Haaland vilji færa sig um set og taka næsta skref á ferlinum. Samkvæmt frétt katalónska miðilsins er Haaland spenntur fyrir að spila í La Liga deildinni á Spáni og þar eru það stórlið Real Madrid og Barcelona sem myndu koma til greina sem mögulegur áfangastaður. Real Madrid yrði ekki í vandræðum með að safna saman þeirri peningaupphæð sem þyrfti til að losa Haaland undan samningi hjá Manchester City en Haaland er með samning við City til ársins 2027. Barcelona hefur aftur á móti verið í fjárhagsvandræðum síðustu misserin en eru engu að síður sagðir vilja vera með í baráttunni um Haaland ef möguleikinn á að fá hann kemur upp. Þá er franska stórliðið PSG einnig sagt áhugasamt um þjónustu Norðmannsins sem á þó að hafa komið þeim skilaboðum til Parísar um að hann hafi ekki áhuga á að leika í frönsku deildinni.
Spænski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira