Tónlist

Kemur frá Sýr­landi og syngur á ís­lensku

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Rawad Nouman ræddi við blaðamann um tónlistardrauminn og lífið.
Rawad Nouman ræddi við blaðamann um tónlistardrauminn og lífið. Vísir/Vilhelm

„Mig dreymdi um að verða tónlistarmaður en út af stríðinu gat ég ekki einbeitt mér að því,“ segir hinn 23 ára gamli Rawad Nouman. Rawad flutti til Íslands 2017, talar mjög góða íslensku og gaf nýverið út lagið Veit ekki neitt. Blaðamaður ræddi við hann og fékk að heyra nánar frá lífi hans.

Byrjaði tíu ára að vinna

„Ég er frá Sýrlandi en ég kom til Íslands árið 2017 þannig ég er búinn að vera hér í rúm sjö ár,“ segir Rawad. Tónlistaráhuginn hefur að hans sögn fylgt honum frá blautu barnsbeini.

„Ég átti mér draum í æsku að taka þátt í söngvakeppninni The Voice Kids, mig langaði það alveg ótrúlega mikið. En út af stríðinu gat ég ekki einbeitt mér að tónlist og gat ekkert sinnt henni. Við fluttum frá Sýrlandi 2011 og við misstum allt sem við áttum þar. Við fórum þaðan til Líbanon og ég byrjaði fljótt að vinna.

Ég er búinn að vera að vinna síðan ég var tíu ára gamall. Ég og bræður mínir þurftum að gera það, pabbi gat ekki fengið vinnu í Líbanon því hann er blindur á öðru auganu. Það var svo erfitt, ég fór ekki í skóla gat ekkert gert það sem mig langaði að gera. Tónlistin var þó alltaf ofarlega í huga mínum.“

Hér má heyra lagið Veit ekki neitt með Rawad:

Setti sér markmið að læra allt sjálfur

Rawad og fjölskylda hans bjuggu í sex ár í Líbanon og hann fór í skóla í eitt eða tvö ár.

„Síðan kom ég til Íslands og byrjaði að læra á tónlist sjálfur heima inni á Youtube eða hvar sem er, ég vildi halda áfram að elta drauminn. 

Ég var að semja og syngja, hef sungið á nokkrum viðburðum með fjölskyldum og vinum og það er svo skemmtilegt. Mig langaði að gera eitthvað fyrir mig, mig langaði svo mikið að geta gert tónlist.

Ég var búinn að senda á fullt af fólki hvort það hefði áhuga á að vinna með mér eða aðstoða mig en fékk engin svör og ég þekkti auðvitað engan. Ég setti því bara mér markmið að ég ætlaði að læra að gera allt sjálfur, gerði smá stúdíó heima og byrjaði á núllpunkti. 

Fyrst samdi ég tvö lög sem voru ekkert „professional“, ég vissi ekki hvernig hljóðnema væri best að nota en keypti einhvern, tengdi við tölvuna og fór að syngja.“

Rawad Nouman hefur haft ástríðu fyrir tónlist frá blautu barnsbeini.Vísir/Vilhelm

Hefur mikinn áhuga á tungumálum

Rawad kynntist svo pródúser frá Marokkó sem hann fór aðeins að vinna með.

„Hann mixaði og masteraði lögin fyrir mín sem var fínt en ég er svo að vinna að því núna að gera gæðin enn betri. Ég er búinn að búa á Selfossi síðustu ár en er að flytja í bæinn núna.“

Rawad býr með fjölskyldu sinni en hefur á síðustu árum nokkrum sinnum flutt í bæinn fyrir skólann.

„Ég kláraði tíunda bekk og byrjaði í framhaldsskóla. Það tekur aðeins lengri tíma hjá mér út af íslenskunni, maður þarf fyrst að læra tungumálið áður en maður fer að læra meira.

Þegar við komum til Íslands hafði ég mikinn áhuga á tungumálum og ég hugsaði landið mitt er farið. Ég get ekki farið aftur núna, ég veit ekki hvort ég fer einhvern tíma til baka. 

Þannig að þetta er nýja landið mitt, ég þarf að læra allt hér og læra tungumálið. Ég veit mjög lítið um Sýrland í dag, ég var lítill þegar ég fór og núna má ég ekki fara til baka heldur.“

Vill stöðugt þróast og læra meira

Rawad segist líða vel hér. Veðrið geti verið erfitt en hann hafi þó verið fljótur að venjast því.

„Ég þarf ekki neitt, ég er með mat, vatn, heimili og vinnu. Svo er ég með draum sem er gaman að geta unnið aðeins að.“

Hann segir að stóri draumurinn sé að geta unnið við tónlistina og verða þekktur tónlistarmaður.

„Svo er ég með eina reglu. Ég má aldrei staðna, ég þarf alltaf að geta hugsað ég er góður en ég get verið betri. Mig langar stöðugt að læra meira og meira og vonandi get ég unnið við þetta.“

Eitt af uppáhalds lögum Rawad heitir Prinsessan mín og er væntanlegt á streymisveitur.Vísir/Vilhelm

Elskar lög um ástina

Rawad hefur gefið út nokkur lög á streymisveitunni Spotify.

„Ég er með tvö arabísk lög sem eru komin út og eitt íslenskt, þar sem litli bróðir minn rappar með mér. Ég mixa og mastera allt.“

Tvö lög hafa verið gefin út en Rawad tók þau af streymisveitum til þess að betrumbæta þau.

„Það eru lögin Fokkast upp og Prinsessan mín. Ég elska lagið Prinsessan mín rosalega mikið, það er mér kærast. Ég ætla aðeins að laga það og gera það betra áður en ég gef það aftur út. 

Ég er byrjaður að skrifa nýtt lag sem er líka í rómantískum blæ. Ég elska lög sem eru um ástina,“ segir Rawad. Hann bætir við að honum finnist skemmtilegt að geta sungið á ólíkum tungumálum.

„Ég er búinn að semja mörg arabísk lög líka og finnst gaman að geta gert tónlist bæði fyrir Ísland og fyrir erlendan markað.“

Hér má hlusta á Rawad Nouman á streymisveitunni Spotify






Fleiri fréttir

Sjá meira


×