Bráðabani í æsispennandi netskákeinvígi Þórarinn Þórarinsson skrifar 7. október 2024 13:27 Guðmundur vann auðveldan sigur á Símoni 6-0 í viðureign þeirra í 16 manna úrslitum á Íslandsmeistaramótinu í netskák. Þá var ballið samt rétt að byrja og við tók magnað einvígi ungstirnanna Hilmis Freys og Aleksandr Domalchuk. Heldur betur hitnaði í kolunum á Íslandsmeistaramótinu í Netskák í seinni umferð gærkvöldsins. Eftir óvenju auðvelda 6-0 afgreiðslu Guðmundar Kjartanssonar á Símoni Þórhallssyni tók við háspennu einvígi Hilmis Freys Heimissonar og Aleksandr Domalchuk-Jonasson, sem stóð ekki uppi sem sigurvegari fyrr en að loknum fyrsta bráðabana mótsins.
Tvö áhugaverð og mjög ólík einvígi fóru fram á Íslandsmeistaramótinu í netskák í gærkvöld. Fyrst áttust við stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson og FIDE meistarinn Símon Þórhallsson sem kom inn á mótið úr undankeppni. Guðmundur þótti því sigurstranglegri á pappírunum og sú varð raunin með afgerandi 6-0 sigri hans. Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Ívar Karlsson lýstu viðureignum kvöldsins í beinni útsendingu og þrátt fyrir að hafa búist við sigri Guðmundar gátu þeir ekki séð fyrir hversu stór hann yrði og sögðust nánast orðlausir. Einvígi þeirra Hilmis og Aleksandr á Íslandsmeistaramótinu í netskák dróst heldur betur á langinn og að því loknu sagðist sigurvegarinn alveg vera til í styttri viðureign í næstu umferð. Fjörið reyndist þó rétt vera að byrja og þeir félagar áttu eftir að þurfa að lýsa enn frekari undrum og stórmerkjum þegar Hilmir Freyr Heimisson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson, tveir af efnilegustu ungu skákmönnum landsins og stórmeistarakandídatar, börðust eins og ljón yfir reitunum 64 í ótrúlega spennandi einvígi. Armageddon Eftir miklar sviptingar og magnaða varnartakta þar sem þeim Ingvari og Birni varð aldrei lýsingarorða vant og töluðu meðal annars um „stórkostlegt einvígi“ og „bestu keppnina hingað til“ var staðan jöfn 5-5 þannig að grípa þurfti til bráðabana, sem kallast yfirleitt „Armageddon“. Þá var tefld ein úrslitaskák þar sem hvítur hafði 5 mínútur og varð að vinna en svartur fékk fjórar mínútur og dugði jafntefli til sigurs. Aleksandr hafði svartan og skemmst frá því að segja að hann vann á jafnteflinu enda býsna slyngur í þeim efnum en nýlegri skák þeirra á Íslandsmóti Skákfélaga lauk einmitt með jafntefli. Eftir einvígið sagðist Aleksandr, í stuttu viðtali við Ingvar Þór, vera uppgefinn eftir atganginn og að hann hafi á tímabili verið viss um að hann myndi tapa. Hann gefist hins vegar aldrei upp. Þá sagðist hann, aðspurður, hafa gaman að því að keppa svona í netskák í beinni útsendingu.
Rafíþróttir Tengdar fréttir Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu „Þetta hafðist en var ansi tæpt á köflum,“ segir Björn Þorfinnsson en hann og Hannes Hlífar Stefánsson stóðu uppi sem sigurvegarar eftir tvö spennandi einvígi á Íslandsmeistaramóti Símans í netskák á sunnudagskvöld. 23. september 2024 12:54 Mest lesið Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Íslenski boltinn Lést 26 ára gamall eftir baráttu við áfengi og þunglyndi Sport Gaf klárum boltastrák verðlaunin Fótbolti Martröð Pogba lokið en hvað tekur við? Fótbolti „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Onana haldið oftast hreinu Enski boltinn Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Bráðabani í æsispennandi netskákeinvígi Tæknin varð Breiðnefjum fjötur um fót í Dota2 Þór sigraðist á Selum í toppbaráttunni Topplið Venus hélt Grýlum á botninum Fyrsti sigur Rafík innsiglaður með „jarðsetningu“ á Sögu Grænlensku börnin spiluðu tölvuleiki með stjörnur í augunum Hnífjafnt á toppnum í Rocket League Míludeildin er stærsta Valorant-mótið frá upphafi Venus skellti Skagamönnum á botninn Denas og Kristófer stinga af í ELKO-Deildinni TÍK horfir fram á veginn frá Bessastöðum Félagslegi þátturinn vegur þungt á rafíþróttaæfingum Fjölnis TDE hirtu Leifarnar og tvö stig í leiðinni Jötunn og Böðlar berjast í bökkum á botninum Baráttan harðnar í Valorant Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Fortnite er aðalleikurinn Óbreytt staða á toppnum í Rocket League „Ég er í sjokki eftir þennan leik“ Ármenningar taplausir á toppnum Mikið fjör á fjölmennu ungmennamóti Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum Dusty aftur á toppnum eftir sigur á Kano Dusty og 354 keyrðu sig í gang með geggjaðri viðureign Frábær endasprettur hjá Veca gerði út af við Hött Óvenju mörg ný andlit í Rocket League Grimm barátta og sviptingar í Fortnite Samstilltir Þórsarar afgreiddu ryðgaða Böðla Sjá meira
Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu „Þetta hafðist en var ansi tæpt á köflum,“ segir Björn Þorfinnsson en hann og Hannes Hlífar Stefánsson stóðu uppi sem sigurvegarar eftir tvö spennandi einvígi á Íslandsmeistaramóti Símans í netskák á sunnudagskvöld. 23. september 2024 12:54