Rafíþróttir

Stofnandi Raf­í­þrótta­sam­bands Ís­lands í E­sports Hall of Fame

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Ólafur Hrafn hlaut viðurkenninguna Youth Award Champion, fyrir óeigingjarnt framlag sitt til valdeflingar ungs rafíþróttafólks, þegar hann var tekinn inn í Esports Hall of Fame.
Ólafur Hrafn hlaut viðurkenninguna Youth Award Champion, fyrir óeigingjarnt framlag sitt til valdeflingar ungs rafíþróttafólks, þegar hann var tekinn inn í Esports Hall of Fame.

E­sports Insi­der tók Ólaf Hrafn Steinars­son, stofnanda Raf­í­þrótta­sam­bands Ís­lands, inn í E­sports Hall of Fame, frægðar­höll raf­í­þróttanna, við há­tíð­lega at­höfn í Lissabon í Portúgal á mið­viku­daginn.

„Ég fékk þetta í raun fyrir minn þátt í því að kynna næstu kynslóð fyrir og efla hana í rafíþróttum,“ sagði Ólafur við Vísi.is eftir að hann fékk viðurkenninguna sem kennd er við Youth Champion Award og er veitt einstaklingum sem hafa gefið sig alla í að kynna rafíþróttir fyrir ungu fólki og valdefla næstu kynslóð afreksfólks í rafíþróttum.

„Í raun má segja að ég hafi fengið þetta fyrir allt sem búið er að gera fyrir rafíþróttastarfið á Íslandi og síðan það sem við erum búin að vera hjá ECA,“ sagði Ólafur einnig í samtali við Vísi en hann stofnaði Esports Coaching Academy eftir að hann lét af formennsku Rafíþróttasambandins.

Ólafur Hrafn sagði jafnframt að honum væri sýndur mikill heiður með viðurkenningunni en hann væri vissulega búinn að helga rafíþróttunum rúmlega síðustu sex ár ævi sinnar.

Kjarninn í alþjóðastarfi Esports Insider er stuðningur við rafíþróttir með eflingu innbyrðis viðskipta fyrirtækja ásamt umfjöllun um og fréttaflutningi af rafíþróttaiðnaðinum.Esports Insider

„Fókusinn og ástríðan hafa alltaf tengst því beint að koma fleiri krökkum í þann farveg að þau fái að upplifa alla spennuna og skemmtunina sem fylgir því að keppa, reyna á sig og taka tölvuleiki alvarlega. Og líka að þau séu ekki að upplifa neinar neikvæðar afleiðingar af tölvuleikjaspilun og séu að gera það í jafnvægi við aðra hluti í lífinu.“

Hérna má nálgast alla umfjöllun Vísis.is um Ólaf Hrafn og frægðarhöll rafíþróttanna.


Tengdar fréttir

Tölvuleikir auðvelda krökkum að kynnast og upplifa sögur

Mun fleiri strákar (98%) en stelpur (71%) í grunnskóla spila tölvuleiki og munurinn eykst eftir aldri en í framhaldsskóla er hlutfall stráka 91% og stelpna 55%. Stelpum sem spila tölvuleiki fækkar verulega með hækkandi aldri en hlutfall strákanna er stöðugra þegar í framhaldsskóla er komið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×